Sonurinn stílisti í sjö daga Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 14. febrúar 2015 12:00 Tanja ásamt börnunum sínum Nataníel Loga og Bergdísi. Vísir/Stefán
Hinn sex ára gamli Nataníel Logi fékk það skemmtilega hlutverk í vikunni að vera stílisti móður sinnar, leikkonunnar Tönju Bjarkar Ómarsdóttir. Það var systir Tönju sem benti henni á bandaríska konu sem gert hafði það sama með syni sínum og Tanja ákvað að bera hugmyndina undir son sinn og í sameiningu ákváðu þau að slá til. Nataníel tók stílista-hlutverkinu af mikilli alvöru og vandaði valið þegar kom að fatnaði og fylgihlutum. „Hann er bara búinn að gera mig mjög töff, ég er alveg að fíla þetta,“ segir Tanja og bætir við: „Hann fékk líka að velja skartgripi og er mjög áhugasamur um þetta allt saman.“ Fötin velja þau mæðgin í sameiningu kvöldið áður og hún segir verkefnið skemmtilegt og hjálpa þeim að skilja hvort annað betur. „Hann er sjálfur með mjög ákveðnar skoðanir um hvernig hann vill klæða sig og hvað honum finnst flott og ég er kannski ekki alltaf alveg sammála,“ segir Tanja og hlær. „Hann er voða skynsamur, eins og á mánudaginn valdi hann Timberland-skó af því þeir eru svo góðir í svona slæmu veðri,“ segir hún glöð í bragði og bætir við: „Hann er ekkert að setja mig í einhverja hlýraboli heldur setur á mig húfu og trefil.“ Eins og margir á Tanja meira af fötum en hún notar og því falla sumar flíkur í gleymsku. „Ég á rosa mikið af fötum og nota kannski svona 10 prósent af fötunum sem ég á.“ Hún segir verkefnið opna fyrir nýja möguleika þegar kemur að því að raða saman flíkum sem hún hefði sjálf ekki parað saman eða hefur ekki notað í langan tíma. „Á þriðjudaginn setti hann saman fjólubláa hettupeysu og gulljakka sem ég hef ekki notað í mörg ár og ég sagði bara: Vá, þetta er geðveikt,“ segir Tanja og mælir með að fleiri foreldrar prufi þetta.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira