Íhugar að klippa hárið eftir sýninguna 13. febrúar 2015 08:00 Eyþór Ingi Gunnlaugsson leikur Jesú í einni vinsælustu rokkóperu allra tíma þegar tónleikaútgáfa Jesus Christ Superstar. „
Ég er virkilega spenntur, það er gaman að fá séns á því að gera þetta aftur,“ segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Hann leikur Jesú í einni vinsælustu rokkóperu allra tíma þegar tónleikaútgáfa Jesus Christ Superstar eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice verður færð upp í heild á sviði Eldborgar í Hörpu og í Hofi á Akureyri . „Þetta er geggjaður hópur og ég hlakka mikið til,“ segir Eyþór Ingi um sýninguna. Aðrir söngvarar eru Þór Breiðfjörð sem leikur Júdas, Björn Jörundur Friðbjörnsson leikur Pontíus Pílatus, Ragga Gröndal leikur Maríu Magdalenu, Jóhann Sigurðarson leikur Kaífas, Ólafur Egilsson leikur Heródes og Annas og þá leikur Magni Ásgeirsson Pétur postula og Símon vandlætara. „Ég held ég sé samt spenntastur fyrir því að sjá Björn Jörund taka Pontíus Pílatus,“ bætir Eyþór Ingi við. Hinn hárprúði tónlistarmaður hefur þó brugðið sér í líki Jesú áður. „Ég byrjaði að safna hári út af hlutverkinu þegar ég lék Jesú í uppfærslu VMA árið 2006. Ég hef ekki klippt það síðan. Eftir sýninguna hugsaði ég með mér, ég hefði getað gert þetta betur þannig að ég leyfði faxinu að hanga og núna er komið að því,“ útskýrir Eyþór Ingi. „Nú fer ég aftur í naflaskoðun hvort ég láti það fjúka eftir þetta.“Þór Breiðfjörð leikur Júdas, Ragga Gröndal leikur Maríu Magdalenu og Björn Jörundur Friðbjörnsson leikur Pontíus Pílatus.Eyþór Ingi hefur komið víða við síðan í uppfærslunni í VMA og hefur hár hans oft komist í umræðuna. „Það hefur enginn fengið að snerta hárið á mér. Leikstjórar og aðrir hafa oft reynt að fá mig til þess að klippa mig og lita. Til dæmis í Rocky Horror, Hárinu og Vesalingunum. Það átti líka að vesenast í hárinu fyrir Eurovision en það kom ekki til greina,“ segir Eyþór Ingi og hlær. Tónlistarstjóri í uppfærslunni er Friðrik Karlsson en hann þekkir tónlistina ansi vel. „Frissi er búinn að vera að spila í Jesus Christ Superstar sýningum á vegum fyrirtækis Andrews Lloyd Webber sem heitir The Really Useful Group. Við erum með sérstakt leyfi frá því fyrirtæki,“ segir Eiður Arnarsson bassaleikari. Þeir Friðrik standa á bak við sýninguna. „Frissi hefur spilað í sýningunni í Bretlandi og Ástralíu. Þetta hafa verið risagigg hjá honum og hefur hann verið að koma fram í tíu til fimmtán þúsund manna tónleikahöllum,“ bætir Eiður við. Sýningin hér á Íslandi verður í tónleikaformi en ekki hinu hefðbundna óperuformi en Selma Björnsdóttir leikstýrir uppfærslunni.Jesus Christ Superstar kom fyrst út á tvöfaldri hljómplötu árið 1970 þar sem Ian Gillan og Murray Head sungu burðarhlutverkin, Jesú og Júdas. Verkið var fyrst sett á svið á Broadway árið 1971 og árið 1973 var gerð kvikmynd sem náði miklum vinsældum. Jesus Christ Superstar hefur verið sett upp reglulega um allan heim undanfarin 40 ár og þar er Ísland engin undantekning. Fyrsta uppsetningin var árið 1973 í Austurbæjarbíói og fjölmargar uppfærslur í atvinnuleikhúsum og hjá áhugamannaleikhópum hafa síðan fylgt í kjölfarið við miklar vinsældir. Sýningin fer fram á skírdag, 2. apríl, og föstudaginn langa, 3. apríl í Eldborg og Hofi. Miðasala hefst 17. febrúar.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Fleiri fréttir Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Sjá meira