Dagur prentiðnaðar haldinn í fyrsta sinn Jóhann Óli Eiðsson skrifar 6. febrúar 2015 10:00 Georg Páll Skúlason fer fyrir Félagi bókagerðarmanna. vísir/stefán
Dagur íslensks prentiðnaðar er haldinn í fyrsta skipti í dag. Að baki honum standa Félag bókagerðarmanna, Samtök iðnaðarins og Iðan fræðslusetur. „Við reynum að höfða til þeirra sem starfa í prentiðnaðinum og prenttengdum greinum,“ segir Georg Páll Skúlason, formaður Félags íslenska bókagerðarmanna. Dagskráin fer fram í húsi Iðu í Vatnagörðum 20. Á milli klukkan 15 og 18 verður boðið upp á nítján stutta fyrirlestra þar sem kennir ýmissa grasa. Hægt er að sækja fyrirlestur um WordPress-vefi, hvernig skal gera smáforrit á tuttugu mínútum, læra á tæknina bakvið UV-prentun og fjallað verður um hvað sé heitt í hönnun. Að fyrirlestrum loknum verður boðið upp á léttar veitingar, lifandi tónlist og skemmtidagskrá frá uppistandaranum Ara Eldjárn. „Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum þennan dag með þessu nafni,“ segir Georg en áður hefur verið boðið upp á svokallaða Prentmessu. Georg telur líklegt að ef vel tekst til verði unnið að því að gera hann að árlegum viðburði. Hann segir að bransinn telji um 800 manns og hann vonar að um fjórðungur þeirra mæti. „Við höfum rætt við fyrirtækin um að veita sveigjanleika til að gefa starfsfólki möguleika á að mæta og það er vonandi að sem flestir geri það.“ Umhverfið tengt prentmiðlum hefur tekið miklum breytingum með nýrri tækni. Georg segir það vera í stöðugri mótun. „Prentiðnaðurinn og grafíkin flæðir með nýjustu tækni. Við reynum að eyrnamerkja þetta sem minnst og opna þetta helst upp á gátt.“ Hann bendir á að margir miðlar komi sínu efni frá sér samtímis á prenti og vef. Í því felst mikið samspil og framtíðin liggur þar. „Í breytingunum liggja tækifærin og prentið mun aðlagast þeim. Það hefur það gert og mun halda áfram að gera. Þetta er alls ekki fyrsta og alls ekki síðasta byltingin sem prentheimurinn mun ganga í gegnum,“ segir Georg.
Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira