Algengast að stjórnendur leggi í einelti Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 5. febrúar 2015 09:20 Brynja Bragadóttir hefur unnið með vinnustaðaeinelti í mörg ár og bæði aðstoðað stjórnendur við að bæta vinnumenningu sem og aðstoðað fólk við að vinna úr erfiðri reynslu. vísir/valli
Einelti á vinnustað getur viðgengist lengi áður en starfsmaðurinn sem verður fyrir því gefst upp eða er látinn fara. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi á vinnustaðaeinelti en í erlendum rannsóknum hefur komið í ljós að í um 70 prósentum tilvika eru það stjórnendur sem leggja undirmenn í einelti. Brynja Bragadóttir, NLP-markþjálfi og Ph.D. í vinnu- og heilsusálfræði, segir eineltið oft miða að því að losna við starfsmanninn og það takist í flestum tilfellum. „Þeir sem leita til mín segja margir sömu söguna, að einelti hafi byrjað með einum stjórnanda en hafi svo undið upp á sig og orðið að fjölelti. Það er þegar fleiri á vinnustaðnum taka þátt í eineltinu sem svo veldur því að starfsmaðurinn er kominn út í horn og á engra annarra kosta völ en að segja upp, ef honum hefur þá ekki í millitíðinni verið sagt upp.“ Fólk sem leitar til Brynju til að byggja sig upp eftir einelti á í mjög mörgum tilfellum erfitt með að fá vinnu aftur eftir eineltið. „Það skaðar svo starfsframann að lenda í þessu. Neikvætt orðspor getur fylgt fólkinu áfram á litlum vinnumarkaði, það er erfitt að fá meðmæli frá vinnuveitanda af því að á vinnustaðnum er eineltið afsakað með því að viðkomandi hafi verið uppspretta vandans og í þriðja lagi er erfitt að útskýra starfslokin á fyrri vinnustað.“ Samkvæmt íslenskum vinnustaðakönnunum telja fimm prósent starfsmanna sig hafa orðið fyrir einelti. Brynja segir að allir geti lent í þessum aðstæðum, ekki síst flottir starfsmenn sem skara fram úr og standa sig betur en aðrir enda veki þeir öfund og óöryggi. Hún segir helsta vopnið í eineltisumræðunni vera fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðir. „Fyrsta skrefið er að fræða og þá sjá kannski stjórnendur ýmislegt sem betur má fara á þeirra vinnustað. Þegar þeir eru orðnir meðvitaðir kemur hvatinn til að vilja breyta, til dæmis að vilja gera vinnustaðarmenninguna heilbrigðari.“ Brynja heldur fyrirlestur um það hvernig stjórnendur geta orðið betri með aðferðum NLP-markþjálfunar á Markþjálfunardeginum í dag á Hilton Nordica. Yfirskrift dagsins er „Þinn árangur!“ og munu fjórtán markþjálfar halda erindi.
Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira