Margar fyrirspurnir um hvalabjórinn frá útlöndum Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. janúar 2015 07:00 Ekki er hægt að selja Hval II hér heima nema í takmarkaðan tíma. aðsend mynd
Eigandi Brugghúss Steðja íhugar að halda framleiðslu á Hval II áfram. Bjórinn er meðal annars framleiddur úr hvalaeistum. Eftir að Fréttablaðið greindi frá bjórnum í byrjun janúar birtu nokkrir af stærstu fréttamiðlum heims fréttir af honum. „Við höfum fengið gríðarlega mikla athygli um allan heim og miklar pantanir að utan. Og hefðum getað selt beint út það sem við vorum með í framleiðslu ef við hefðum viljað sinna því,“ segir Dagbjartur Arilíusson, eigandi Steðja. Vínbúðirnar, sem hafa einkaleyfi á smásölu áfengra drykkja á Íslandi, selja þorrabjór einungis á tímabilinu 23. janúar til 21. febrúar. Framleiðsla Steðja á Hval II var einungis hugsuð til þess að svara eftirspurn á því tímabili. „En engu að síður er unnið úr þessum fyrirspurnum sem koma að utan,“ segir Dagbjartur. Það yrði þá aukið við framleiðsluna á þessum tiltekna bjór og selt út. „Það er það sem við erum að íhuga núna, hvað við gerum. Ef við fáum einhvern almennilegan markað úti þá höldum við áfram,“ segir hann. Dagbjartur segir þó að það sé takmarkað hvað sé hægt að flytja mikið út vegna hindrana sem hafi verið settar á viðskipti með hvalaafurðir. Til dæmis í Evrópusambandinu. „Þar voru fjórir heildsalar, hver í sínu landinu, sem vildu flytja þetta inn,“ segir Dagbjartur. Innflytjendur á Írlandi séu búnir að fá neitun frá yfirvöldum þar í landi og hann býst við að eins fari fyrir hinum þremur. En Dagbjartur segir að það hafi ekki allir tekið bjórnum vel. „Það hafa komið mótbárur en mjög léttvægar,“ segir hann. Ein erlend mótmælasíða hafi verið sett upp og þar hafi nokkrir skrifað undir.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira