Héldu að beiðnin væri Nígeríusvindl Gunnar Leó Pálsson skrifar 28. janúar 2015 14:45 Steinarr Lár og Lárus Guðbjartsson eiga KúKú Campers. Mynd/aðsend „
Google hafði samband en ég hélt að þetta væri bara eitthvert Nígeríusvindl,“ segir Steinarr Lár, sem á vefsíðuna KúKú Campers ásamt Lárusi Guðbjartssyni. Þar er lögð áhersla á að sýna ferðamönnum að hægt sé að keyra hringinn í kringum Ísland án þess að það kosti allt of mikla peninga. Tæknirisinn Google hafði samband við þá félaga og vildi fá að nota heimasíðu fyrirtækis þeirra í heljarinnar auglýsingu sem komin er í loftið. Hingað til lands kom fjöldi fólks í október, meðal annars frá Los Angeles og London til þess að taka upp auglýsinguna en hún var unnin í samstarfi við Pegasus. „Það voru um 40 manns víðs vegar að úr heiminum sem tóku þátt í að búa til þessa auglýsingu. Hún var tekin upp á Suðurlandi, við suðurströndina og einnig á Reykjanesinu og í Hvalfirði. Þetta er bæði mikil kynning fyrir fyrirtækið okkar og Ísland yfirhöfuð,“ segir Steinarr. Auglýsingin verður sýnd í sjónvarpi og á netinu og eru þeir félagar mjög ánægðir með útkomuna. Samstarf Google og KúKú Campers hófst þó töluvert áður en umrædd auglýsing fór í vinnslu. „Í upphafi höfðu þeir áhuga á að gera svokallaða tilviksrannsókn [e. case study] um okkar síðu. Google vill vera fremsta fyrirtækið á netinu og til þess að verða fremstir fylgjast þeir með hvaða síður eru að gera það gott, það er að segja hvaða síða er með mikla traffík, lengd heimsóknartíma og þess háttar,“ útskýrir Steinarr. „Þeir vildu því taka okkar síðu og greina hana, af hverju traffíkin var svo mikil á okkar síðu, við vorum upp með okkur.“Bílaflotinn.Google gerir slíkar tilviksrannsóknir fyrir heimasíður um allan heim sem fyrirtækinu þykir áhugaverðar og því mikil viðurkenning að hljóta slíkt. KúKú Campers var stofnað árið 2012 og hefur fyrirtækið vaxið hratt. „Þegar fjöldi iðnaðarmanna yfirgaf landið í kringum hrun var fjöldi sendibíla settur á sölu. Við byrjuðum á að kaupa einn slíkan og breyta honum í húsbíl og bjuggum til heimasíðuna í kjölfarið. Það gekk svo vel og bókanirnar hrönnuðust upp,“ segir Steinarr. Nú er fyrirtækið með um 200 húsbíla á sínum snærum, af öllum stærðum og gerðum og er jafnframt stærsta húsbílaleiga landsins. KúKú Campers er jafnframt mikið fjölskyldufyrirtæki þar sem Lárus og Steinarr eru systkinasynir og móðir Steinars sér um bókhaldið og móðir Lárusar sér um að sauma hitt og þetta fyrir fyrirtækið.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira