Framtíðin byggist á ljósi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. janúar 2015 11:00 "Dagskráin er svo ljóslifandi að það er alltaf eitthvað nýtt að bætast við,“ segir Guðrún Bachmann. Vísir/GVA „
Ár ljóssins hófst með setningu þess í Frakklandi 20. þessa mánaðar og í dag ætlum við að kynna það sem er á döfinni hjá okkur því það er margt,“ segir Guðrún Jónsdóttir Bachmann, kynningarstjóri Háskóla Íslands. Hún segir þetta ár verða nýtt til fræðslu og skemmtunar og til að draga fram í dagsljósið hvernig ljósið kemur við sögu í allri okkar tilveru. „Sólarljósið er auðvitað undirstaða alls og gerir okkur kleift að vera til. Við vitum öll að það er ljós á einum stað á jörðinni meðan myrkur er á öðrum. Sameinuðu þjóðirnar vekja athygli á mismunandi aðstæðum fólks, að ljósgjafarnir eru ólíkir og sum börn geta kannski ekki lært heimalærdóminn því þau hafa ekki ljóstýru heima hjá sér. Allt þetta gefur okkur tilefni til að skoða hvernig heimurinn okkar er.“ Guðrún segir stóra áfanga í vísindum hafa unnist á síðustu 150 árum. „Fólk skilur ljósið betur og betur og nýtir það í tækni. Til dæmis að láta eitthvað ferðast með ljósi, eins og útvarp og sjónvarp. Allt byggist á rannsóknum vísindamanna á ljósinu gegnum aldirnar, alveg frá sólinni sjálfri niður í smæstu einingar sem notaðar eru í heilbrigðisvísindum og samskiptatækni.“ Ljósið á himninum, í rafmagninu, heilbrigðisvísindum, myndunum. Öllu þessu verður gefinn gaumur á ári ljóssins að sögn Guðrúnar. „Ljósið er lykillinn að allri nútímatækni og framtíðin byggist á ljósi og ljóstækni. Hún segir Háskóla Íslands leggja áherslu á að fræða ungt fólk og vekja áhuga þess og vitund um vísindi. „Ljósið verður hápunktur í vísindasmiðjunni í Háskólabíói, háskólalestinni og háskóla unga fólksins. Svo verður gefinn svokallaður ljósakassi í alla grunnskóla landsins. Við ætlum meðal annars að kortleggja myrkurgæðin í landinu og fá skólabörn til að segja okkur hvernig þeim gengur að horfa á stjörnuhimininn heiman frá sér,“ lýsir Guðrún og bætir við: „Dagskráin er svo ljóslifandi að það er alltaf eitthvað nýtt að bætast við og við fögnum öllum sem vilja vera með á ári ljóssins.“ Það eru alþjóðlegt ár ljóssins 2015, Félag Sameinuðu þjóðanna, Íslenska UNESCO nefndin og Háskóli Íslands sem sameiginlega mynda Landsnefnd um ár ljóssins.
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Sjá meira