Lífið

Hittu Colin Firth á Golden Globe

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Magni og Hugrún eru afar þakklát fyrir góð viðbrögð erlendra stjarna við hönnun þeirra.
Magni og Hugrún eru afar þakklát fyrir góð viðbrögð erlendra stjarna við hönnun þeirra. Vísir/GVA
Magni Þorsteinsson og Hugrún Árnadóttir, eigendur tískuverslunarinnar KronKron, hittu stjörnurnar Ginu Rodriguez, sem fékk Golden Globe fyrir hlutverk sitt í þáttunum Jane the Virgin, og breska leikarann Colin Firth, á Golden Globe-hátíðinni á dögunum. Firth sagðist kannast við merkið og hafa heyrt um það áður.

Rodriguez fékk Golden Globe fyrir aðahlutverk í þáttunum Jane the Virgin og pantaði hún að sögn Magna fullt af flíkum frá Kron by Kronkron.

Hugrún og Magni með Gina Rodriguez Golden Globe verðlaunahafaVísir
„Þetta er enn eitt ævintýrið sem við erum lent í sem er að leiða okkur á spennandi slóðir. Þetta var frábær ferð og alveg ómetanleg fyrir kynningu Kron by Kronkron í Bandaríkjunum, alveg ótrúleg viðbrögð og tækifæri sem við erum þarna að detta um,“ segir Magni.

„Þetta eru dásamleg viðbrögð og svo frábært hvað þessar „stjörnur“ hrífast af okkar hönnun og eru allar af vilja gerðar til að leggja sitt af mörkum til að kynna okkur í Bandaríkjunum. Það er ansi sterkt tengslanet að myndast þar fyrir okkur,“ bætir Hugrún við.

Þau komu fram í beinni útsendingu hjá sjónvarpsstöðinni NBC fjórum sinnum. „Þetta er svakalega dýrmæt auglýsing fyrir okkur og við erum svakalega þakklát fyrir þetta. Þetta virðist vera að vinda upp á sig og því er úr ansi miklu að vinna í kjölfarið,“ segir hún.

Ekki er víst hvort samskonar kynning verður á Óskarsverðlaunahátíðinni sem verður haldin í næsta mánuði, en fyrirkomulagið þar er annað en tíðkast til dæmis á Golden Globe. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×