Nýjungar á Listasafninu Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar 13. janúar 2015 10:00 Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir heldur fyrsta fyrirlesturinn. Vísir
Listasafnið á Akureyri heilsar nýja árinu með stæl og býður það velkomið með nýju merki, heimasíðu og glæsilegri dagskrá. Ein af nýjungunum á dagskránni eru þriðjudagsfyrirlestrar sem haldnir verða í vetur. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í dag, 13. janúar, klukkan 17. Fyrirlestrarnir fara fram í Ketilhúsinu, sem nú er orðið hluti af listasafninu og einn af sýningarsölum þess, og er listasafnið þá með tvo sýningarsali, Ketilhúsið og í sjálfri listasafnsbyggingunni. Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal fyrirlesara í vetur verða þau Hildur Friðriksdóttir, Eiríkur Stephenson og Hjörleifur Hjartarson (Hundur í óskilum), Margeir Dire Sigurðsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð og Jón Páll Eyjólfsson. Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir mun halda fyrsta fyrirlesturinn undir yfirskriftinni Kjarni. „Ég mun fjalla um minn feril ásamt því að tala um hagsmunamál myndlistarmanna og hvað er í gangi í þeim málum, þar sem ég er formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna,“ segir Jóna. Hún útskrifaðist frá Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005 og lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007. Árið 2012 útskrifaðist hún með MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. „Meðal verka minna sem ég mun fjalla um er textaverkið Talk sem ég vann með safnstjóranum Hlyni Hallssyni fyrir Listahátíð 2012. Ég hef alltaf unnið mikið með texta og samtalið við áhorfandann, þá aðallega samtalið milli verksins og áhorfandans. Að auki fjalla ég um verkið Animus sem sýnt var í 002 Galleríi, þar sem ég fékk sex listakonur til að loka sig inni í tíu fermetra rými í sólarhring,“ segir Jóna. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis og eru allir velkomnir.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Sjá meira