Gífurleg flóð í norðurhluta Englands Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. desember 2015 23:19 Björgunarmenn að störfum í bænum Mytholmroyd en aðeins er fært um götur bæjarins á bátum. vísir/getty
Mikið hefur rignt í norðurhluta Englands í dag og hefur það haft í för með sér að margar ár hafa flætt yfir bakka sína. Að auki hafa heimili í Lancashire og Yorkshire verið rýmd vegna vatnsflaumsins. Um málið er meðal annars fjallað á BBC. Samkvæmt frétt á vef Bloomberg voru hermenn kallaðir út til að koma upp flóðavörnum á þeim svæðum þar sem mestrar rigningar var von. Almannavarnir landsins hafa gefið út yfir hundrað flóðaviðvaranir en þar af eru yfir þrjátíu viðvarnir þess efnis að flóðin geti ógnað lífi fólks. Cobra, neyðarnefnd Breta, hefur verið kölluð saman til fundar annan daginn í röð vegna flóðanna. Umhverfisráðherra landsins, Elizabeth Truss, tjáði fjölmiðlum að allt kapp væri lagt á að tryggja öryggi fólks en öryggi húsa og fasteigna fylgdi í kjölfarið. Þetta er ekki í fyrsta skipti í ár sem breskar ár flæða yfir bakka sína í kjölfar úrhellis en það gerðist fyrir rúmum mánuði. Við það tilefni tilkynnti áðurnefnd Truss að það stæði til að taka flóðavarnir landsins í gegn til að tryggja að annað eins myndi ekki endurtaka sig.A severe flood warning means danger to life. It doesn't mean "come and have a look"! Please don't come to visit Whalley or Ribchester now.— Lancashire Fire (@LancashireFRS) December 26, 2015
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira