Fimm mánaða nálgunarbann: Börn og vinir þeirra vitni að ofbeldinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júlí 2015 13:33 Börn hjónanna og vinir þeirra urðu vitni að árásum á konuna. Annað barn þeirra bar vitni og staðfesti orð móður þess. Vísir/Getty
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í fimm mánaða nálgunarbann vegna ofbeldis í garð eiginkonu sinnar til tíu ára. Vitni urðu að árásum mannsins á eiginkonu sína en maðurinn neitar alfarið sök og segir þau öll ljúga. Hæstiréttur staðfesti ákvörðun Héraðsdóms Suðurlands. Maðurinn var dæmdur í fjögurra vikna nálgunarbann fyrr í sumar en lögreglustjórinn á Suðurlandi telur vægari úrræði en áframhaldandi nálgunarbann ekki munu vernda friðhelgi og tryggja öryggi konunnar og barna þeirra. Maðurinn hafi ítrekað brotið gegn fyrra nálgunarbanni með sms skilaboðum. Hjónin hafa verið gift í tíu ár en verið í sambúð í ellefu. Þau fluttu til landsins fyrir einu og hálfu ári. Kemur fram í greinargerð lögreglu að ofbeldi, bæði líkamlegt og andlegt, hafi verið viðvarandi í sambandinu undanfarin ár. Lýsir konan fjórum skiptum undanfarin tvö ár þar sem maðurinn réðst á hana, síðast í apríl 2015.Aukið ofbeldi samhliða aukinni drykkju „Hafi ofbeldið falist í því að hann hafi slegið og sparkað í hana, þ.á m. þegar hún hafi legið í gólfinu, hent henni til og ítrekað kýlt hana með krepptum hnefa í andlit og höfuð. Börn þeirra hafi orðið vitni að ofbeldinu, og auk þess vinir þeirra í a.m.k. tvö síðustu skiptin sem líkamlegt ofbeldi hafi átt sér stað,“ eins og segir í greinagerð lögreglustjórans. „Brotaþoli hafi skýrt frá því að ofbeldishegðun varnaraðila hafi stigmagnast nú undanfarið, jafnhliða aukinni drykkju hans. Nú væri svo komið að bæði hún og börnin óttuðust varnaraðila, og reyndu öll að láta lítið fyrir sér fara í þeirri von að þannig takist að halda friðinn á heimilinu.“ Manninum er óheimilt að koma á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus frá miðju húss þeirra og jafnframt má hann ekki veita henni eftirför, heimsækja eða vera á nokkurn hátt í sambandi við hana.Úrskurð Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira