Heldur betur eftirminnileg leikhúsferð Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2015 13:00 Ingimundur og dæturnar Elísabet og Katrín ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur og Erni Árnasyni í gervum Línu og herra Langsokks. Mynd/Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur heldur áfram að heilla leikhúsgesti á öllum aldri og ekkert lát er á vinsældum leikritsins í Borgarleikhúsinu, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Sýndar hafa verið yfir 60 sýningar og hefur verið uppselt á þær allar. Ingimundur Gestsson lagermaður var á sýningunni um Línu um síðastliðna helgi ásamt átta ára tvíburadætrum sínum, Elísabetu og Katrínu. Herra Langsokkur sótti þau þrjú út í sal og færði þeim blóm og gjafakort fyrir fjóra á sýninguna Billy Elliot í tilefni þess að eitt þeirra var gestur númer þrjátíu og fimm þúsund. „Þetta var rosalega skemmtileg sýning og þvílíkt gaman að fá svona aukabónus,“ segir Ingimundur þegar slegið er á þráðinn til hans. En var honum og dætrunum sagt frá því þegar þau gengu í salinn að þau væru svona heppin? „Nei, ekki fyrr en í lok sýningar. Þá sagði Örn Árnason, í gervi herra Langsokks, að þetta væri nú ekki alveg búið og tilkynnti að gestur númer þrjátíu og fimm þúsund væri í salnum, hann sæti í sætaröð númer átta í sæti númer tíu. Svo beindist kastljósið að annarri dóttur minni og nafn konu minnar Elínar Bjarkar Björnsdóttur var lesið upp því hún hafði keypt miðann minn, en var ekki með okkur. Við drifum okkur öll þrjú upp á svið og tókum við gjöfunum. Svo fengum við að fara inn á sviðið og skoða leikmyndina, inn í búningsklefa til leikaranna og sjá nánast hvernig allt fer fram baksviðs. Þetta verður heldur betur eftirminnileg leikhúsferð fyrir okkur öll.“ Ingimundur segir dætur hans hafa fengið miðana á Línu í jólagjöf frá ömmu þeirra, þannig að segja megi að hver gjöfin reki aðra. „Við erum dugleg að fara í leikhús,“ segir hann. „Þannig að þessir miðar á Billy Elliot koma sér vel.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira