Forstjóri Kauphallar segir skorta gagnsæi jón hákon halldórsson skrifar 4. febrúar 2015 08:45 Páll Harðarson „
Með hliðsjón af óumdeildum ávinningi gagnsæis er það áhyggjuefni hversu lítið gagnsæi er í kringum afgreiðslu beiðna um undanþágur frá gjaldeyrishöftum.“ Þetta segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, í grein í Markaðnum í dag. Páll segir Seðlabankann telja gagnsæi takmörkunum háð vegna þagnarskyldu gagnvart umsækjendum en hafi reynt að koma til móts við kröfu um aukið gagnsæi með birtingu upplýsinga um almenna framkvæmd undanþágubeiðna. „Umsækjendum er engu að síður nokkur vandi á höndum við mat á því hvort jafnræðis sé gætt í ákvörðunum bankans. Einfalt væri að draga úr tortryggni, til dæmis með því að bjóða upp á fljótvirka kæruleið eins og Viðskiptaráð Íslands hefur lagt til,“ segir Páll. Viðskiptaráð sendi umboðsmanni Alþingis og Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, bréf í september með tillögum um umbætur á stjórnsýsluháttum Seðlabanka Íslands, þar á meðal tillögu um kæruleið þannig að unnt sé að láta reyna á bæði málsmeðferð og niðurstöðu ákvarðana. „Það sem við höfum nefnt sem viðbótarvalkost er að fyrirtækjum verði gefinn kostur á flýtiafgreiðslu á undanþágubeiðnum í samhengi við það að það er mjög misjafnt hvað eru miklir hagsmunir undir þegar kemur að þessum undanþágubeiðnum. Og í þeim tilfellum þar sem þarf að fá svar fljótt í samhengi við þann gjörning sem um ræðir, þá sé fyrirtækinu gert kleift að standa undir þeim viðbótarkostnaði sem fylgir slíkri flýtiafgreiðslu,“ segir Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Eftir ábendingar ráðsins segir Frosti Seðlabankann hafa birt á heimasíðu sinni ítarlegri upplýsingar um eðli undanþáguferlisins, en ekki brugðist við að öðru leyti.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira