Vitlaus fjármögnun Vaðlaheiðarganga Guðmundur Karl Jónsson skrifar 16. október 2015 07:00 Best væri að Kristján Lárus legði meiri áherslu á tvíbreið jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta. Mörg óvissuatriði tengd hugmyndinni um fjármögnun Vaðlaheiðarganga með innheimtu vegtolla á hvern bíl vekja spurningar um hvort þingmenn Norðausturkjördæmis verði síðar meir gerðir ómerkir orða sinna þegar allar tilraunir til að reka þetta rándýra samgöngumannvirki sem einkaframkvæmd mistakast. Árangurslaust voru þingmenn fyrrverandi ríkisstjórnar spurðir að því hvort skynsamlegt sé að láta afleiðingarnar lenda á ríkissjóði og síðar skattgreiðendunum þegar meirihluti heimamanna í Norðausturkjördæmi viðurkennir þá staðreynd að alltof fáir bílar séu í umferð á Eyjafjarðarsvæðinu og í sveitunum austan Vaðlaheiðar til þess að 1.000 króna veggjald á hvert ökutæki geti staðið undir launum starfsmanna, afborgunum, viðhaldi og rekstri ganganna. Engin svör fást þegar spurt er hvaða sanngirni felist í því að íslenskir skattgreiðendur skuli með stórauknum álögum gjalda fyrir þetta stórmennskubrjálæði Steingríms J. sem telur pólitískan glundroða, ringulreið, öryggis- og stjórnleysi skipta enn meira máli í stað þess að taka á atvinnumálum íbúanna við Skjálfandaflóa. Þessi framkoma jarðfræðingsins úr Þistilfirði eyðileggur allar forsendurnar sem tengjast arðsemismati Vaðlaheiðarganga. Af þessu stórmennskubrjálæði jarðfræðingsins verður löng saga þegar það sannast að félög í fámennum landshlutum ráða ekki við fjármögnun samgöngumannvirkja með innheimtu vegtolla á hvert ökutæki fari kostnaðurinn yfir 15 milljarða króna. Mörgum spurningum neitar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra að svara þegar það fréttist að meðalumferð ökutækja á sólarhring í Vaðlaheiðargöngum nær aldrei þeim heildarfjölda sem fer daglega í gegnum Hvalfjarðargöngin. Spurningin er hvenær Steingrímur J. og Oddný falla á reiknisprófinu þegar fyrirsögnin Vitlaus fjármögnun Vaðlaheiðarganga birtist á forsíðum dagblaðanna. En hvert verður reikningurinn sendur? Fljótlega geta áhyggjufullar fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni spurt hvers vegna þeim sé refsað fyrir þjófnað óreiðumanna sem aldrei þurfa að svara til saka um leið og allar tilraunir til að fjármagna Vaðlaheiðargöng með 1.000 króna veggjaldi á hvern bíl renna út í sandinn. Að viðlögðum drengskap lofar jarðfræðingurinn úr Þistilfirði því að rekstur jarðganganna undir heiðina skuli standa undir sér með innheimtu vegtolla þegar hann ítrekar andstöðu sína gegn Norðfjarðargöngum og tillögu Arnbjargar Sveinsdóttur um Fjarðarheiðargöng sem afgerandi meirihluti Alþingis samþykkti fyrr á síðasta ári. Sjálfur kemur hann aldrei virðulega fram gagnvart Austfirðingum, Sunnlendingum og Vestfirðingum. Á síðasta ári komust ráðherraskipti í fráfarandi ríkisstjórn í fréttirnar sem vekja spurningar um hvort pólitísk hrossakaup hafi farið fram á bak við tjöldin um leið og jarðfræðingurinn barðist fyrir því að fjármögnun Vaðlaheiðarganga yrði troðið fram fyrir önnur þarfari verkefni á Vestfjörðum, Austurlandi og Suðurlandi. Það eru Dýrafjarðargöng, Norðfjarðargöng, Lónsheiðargöng, stutt veggöng undir Reynisfjall og undirbúningsrannsóknir á jarðgangagerð milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar. Allar spár um að meðalumferð í veggöngunum milli Fnjóskadals og Eyjafjarðar verði jafnmikil og í Hvalfjarðargöngunum eru ófullnægjandi, mótsagnakenndar og ómarkvissar. Of mikil áhætta fylgir því að setja Vaðlaheiðargöng í einkaframkvæmd þegar haft er í huga hvað meðalumferð ökutækja á sólarhring milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals er mikið minni en í Suðurkjördæmi, Hvalfjarðargöngum og á höfuðborgarsvæðinu. Félög sem voru stofnuð í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum til að fjármagna þessi veggöng með veggjaldi eiga nú í erfiðleikum með að útvega fjármagn í þetta rándýra samgöngumannvirki. Fljótlega spyrja vonsviknir skattgreiðendur hvenær Vegagerðin muni festast í svikamyllu Vaðlaheiðarganga að undirlagi Steingríms J. og Oddnýjar G. Harðardóttur þegar allar tilraunir til að fjármagna þessa rándýru einkaframkvæmd með veggjaldi snúast upp í andhverfu sína. Fyrir félög í fámennum landshlutum sem ráða ekki við svona dýrt samgöngumannvirki verða afleiðingarnar skelfilegar án þess að Steingrímur og Oddný taki það nærri sér. Ræður þeirra hafa verið skammir og tilefnislausar rangfærslur um samgöngumál Mið-Austurlands, Suðurlands og Vestfjarða eftir að Alþingi samþykkti fyrirhuguð Norðfjarðargöng 2009. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið 37 milljarðar gefins á silfurfati Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir Skoðun Er nóg að starfsfólkið sé gott? Sigrún Huld Þorgrímsdóttir Skoðun Halldór 09.08.2025 Halldór Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfing skiptir öllu máli í Parkinson Helga G Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hinsegin í vinnunni Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir skrifar Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisstefnan og frelsið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar