Sérsveitir NATO aðstoða í Kunduz Samúel Karl Ólason skrifar 30. september 2015 07:34 Hermenn í Kunduz. Vísir/AFP
Sérsveitir nokkurra ríkja NATO hafa komið afgönskum hermönnum til aðstoðar í borginni Kunduz. Þar reynir herinn að ná borginni úr haldi Talibana, sem hertóku hana í leiftursókn á mánudaginn. NATO hætti bardagaaðgerðum í Afganistan fyrir níu mánuðum.Samkvæmt AFP er um að ræða hermenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi, en ekki liggur fyrir hve margir þeir eru. Þar að auki er herinn studdur af loftárásum.Baráttan um Kunduz.Vísir/GraphicNewsFlestir hermenn NATO ríkja yfirgáfu Afganistan í lok síðasta árs, eftir rúmlega 13 ára viðveru þar í landi. Hins vegar urðu um 13 þúsund hermenn eftir sem þjálfa afganska hermenn og fleira. Tvær loftárásir voru gerðar við flugvöll borgarinnar í nótt, þegar Talibanar reyndu að ná tökum á honum. Leyniþjónusta Afganistan segir að yfirmaður Talibana í héraðinu og aðstoðarmaður hans hafi fallið í árásunum. Talibanar neita því hins vegar samkvæmt BBC. Harðir bardagar eru nú sagðir eiga sér stað í Kunduz, en ekki liggur þó fyrir hvaða fylking stjórnar hvaða svæðum. Lögreglustjóri borgarinnar hefur sagt að hundruð Talibana liggi í valnum og varnarmálaráðuneytið segir herinn hafa höfuðstöðvar lögreglunnar og fangelsi, þar sem Talianar slepptu hundruð fanga. BBC segir þó frá því að myndbönd sem Talibanar hafi birt sýni þá monta sig af skriðdrekum sem þeir hafi náð og annars konar brynvörðum bílum og tækjum. Þá er talið að Talibönum hafi borist liðsauki. Ashraf Ghani forseti Afganistan segir að árangur hafi náðst, en að Talibanar skýli sér á bakvið borgara og því gangi þeim hægar en ella.
Tengdar fréttir Afganar ráðast gegn Talibönum í Kunduz Talibanar unni í gær sinn stærsta sigur frá 2001, þegar þeir hertóku borgina. 29. september 2015 09:49 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Afganar ráðast gegn Talibönum í Kunduz Talibanar unni í gær sinn stærsta sigur frá 2001, þegar þeir hertóku borgina. 29. september 2015 09:49