Nálgunarbann stytt úr sex mánuðum í fjórar vikur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. júní 2015 15:28 Konan lýsti fjórum skiptum þar sem maðurinn hafði beitt hana líkamlegu ofbeldi sem fólst meðal annars í því að hann sló og sparkaði í hana og kýldi hana ítrekað í andlitið. vísir/getty
Hæstiréttur hefur stytt nálgunarbann sem Lögreglustjórinn á Suðurlandi úrskurðaði mann í úr sex mánuðum í fjórar vikur. Héraðsdómur Suðurlands hafði áður staðfest úrskurð lögreglustjórans en maðurinn kærði þá ákvörðun til Hæstaréttar. Gildir nálgunarbannið frá 11. júní síðastliðnum. Í dómi héraðsdóms kemur fram að manninum hafi verið gert að yfirgefa heimili sitt þar sem hann bjó ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum, 5 og 9 ára. Hafi lögreglustjóranum á Suðurlandi borist tilkynning frá félagsyfirmálavöldum um slæmar aðstæður á heimilinu vegna ofríkis mannsins og ítrekaðs ofbeldis gegn konunni, sem börnin urðu vitni að. Lögreglan tók í kjölfarið skýrslu af konunni og kom þá fram að ofbeldi hafi verið viðvarandi í sambandi hennar og mannsins síðustu ár. Lýsti hún fjórum skiptum þar sem maðurinn hafði beitt hana líkamlegu ofbeldi sem fólst meðal annars í því að hann sló og sparkaði í hana og kýldi hana ítrekað í andlitið. Skýrslur voru einnig teknar af þremur vitnum sem öll staðfestu framburð konunnar. Maðurinn sagði hins vegar hjá lögreglu að vitnin væru að ljúga og hafnaði hann öllum ásökunum um ofbeldi á heimilinu. Hann sagði hins vegar konu sína „uppstökka og ofbeldisfulla gagnvart honum sjálfum og börnunum og að hún beiti þau öll m.a. líkamlegu ofbeldi og þvingunum,” eins og segir í dómi héraðsdóms.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira