Teiknar fólk gegn vægu gjaldi Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 6. mars 2015 10:00 Ariana segir eftirspurnina vera meiri en hún bjóst við. Vísir/GVA
Ariana Katrín Katrínardóttir safnar fyrir námsferð til New York með því að teikna prófílmyndir fólks á Facebook. Hún segir söfnunina hafa farið vel af stað. „Þetta er eiginlega meira en ég bjóst við. Er eiginlega bara komin í tvær vinnur eða er búin að vera síðustu daga,“ segir hún glöð í bragði. Hún teiknar myndirnar og skannar inn í tölvu en vinnur þær ekki frekar. Hver mynd kostar 1.000 krónur en 2.000 krónur ef fólk vill fá myndina heimsenda en stíll myndanna fer eftir skapi listamannsins hverju sinni. „Ég ákvað að setja það inn af því þetta er það ódýrt, þannig að fólk gæti kannski ekki verið að panta eitthvað ákveðið, mér finnst þetta líka gaman ef maður gerir þetta bara eins og það kemur til manns,“ segir hún og bætir við: „Bara fyrsta hugmynd sem fer niður á blað, að ég sé ekki að krumpa blöð og byrja upp á nýtt.“ Rúmlega sjötíu manns hafa þegar keypt mynd af Ariönu og stefnir hún á að safna að minnsta kosti 140.000 krónum, til þess að dekka flug og gistingu. „Það er kannski erfiðast þegar fólk er bara með mynd af sér þar sem það er sætt eða bara með selfie,“ segir Ariana þegar hún er spurð að því hvort ekki sé erfitt að teikna ókunnugt fólk. „Sumir eru með skemmtilega svipi, það er líka bara nóg til þess að gera myndina áhugaverða,“ segir hún hress að lokum. Hægt er að panta mynd af Ariönu með því að senda hevnni póst á Facebook.com/ariana.katrin.
Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira