16 ára fá frítt mánaðarkort í ræktina 15. ágúst 2015 10:00 „Mánuðurinn er þeirra og þau geta nýtt hann eins og þau vilja.“ Vísir/Valli
Allir sem eru fæddir á árinu 1999 geta til loka þessa árs farið í næstu afgreiðslu World Class og fengið virkjað mánaðarkort í líkamsrækt og pantað einn tíma hjá þjálfara, án endurgjalds. Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, segir hugmyndina hafa komið almennilega upp eftir að sonur hans sem varð 16 ára á árinu fór að sýna aukinn áhuga á að mæta í ræktina. „Aldurstakmarkið í stöðvarnar hjá okkur er 15 ára og ég hef nokkrum sinnum eftir að hann náði þeim aldri reynt að fá hann með mér á létta æfingu og ekki alltaf haft erindi sem erfiði. Hann hefur alltaf verið duglegur í íþróttum en æfingastöðvarnar hafa ekki endilega heillað. Þegar hann fór svo núna að sýna meiri áhuga datt okkur í hug að gefa ungu fólki tækifæri til að prófa og gefa þeim einnig færi á að fá leiðbeiningar frá þjálfara um hvernig er best að bera sig að því það er nauðsynlegt að æfa rétt.“ Þau sem nýta sér kortið fá einnig frían aðgang að Laugardalslaug, Lágafellslaug og Seltjarnarneslaug og opnum hópatímum í öllum stöðvum World Class. „Unga fólkið getur því tekið á því með jafnöldrum sínum eða hreinlega bara haft það náðugt í pottinum og spjallað. Mánuðurinn er þeirra og þau geta nýtt hann eins og þau vilja. Það er nauðsynlegt að hreyfa sig og svo er líka alveg jafn nauðsynlegt að hafa gaman að,“ segir Björn.
Mest lesið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fleiri fréttir „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu