Var viss um að hún væri stödd í paradís 26. janúar 2015 12:00 Guðmann Þorvaldsson ásamt hópnum sem kom til hans á vegum Meet the Locals. Vísir „
Þetta var bara bráðskemmtilegt, þau voru yfir sig hrifin af þessu. Það er satt að maður er manns gaman, en það fyllir mann líka stolti að sýna hvað við eigum á Íslandi. Það er nefnilega ekkert sjálfgefið,“ segir Guðmann Þorvaldsson sem er búsettur á Eskifirði. Guðmann tók á móti litlum hópi erlendra ferðamanna og bauð þeim í kvöldmat í gegnum verkefnið Meet the Locals, eða Hittu heimamenn. Verkefnið hefur svo sannarlega slegið í gegn undanfarið og segir hann Austfirðinga duglega að taka þátt. „Ég reddaði mér hákarli og harðfiski og náði svo í plokkfisk á kaffihúsinu hérna í bænum, því það þarf allur matur að koma frá viðurkenndu eldhúsi. Ég leyfði þeim síðan að skoða allt hér heima og taka myndir eins og þau vildu áður en við borðuðum,“ greinir hann frá. Guðmann segir hópinn hafa verið yfir sig hrifinn af plokkfiskinum og harðfiskinum. „Ég hélt þau myndu kannski spýta hákarlinum út úr sér, en þau líktu honum bara við sterkan ost og fannst hann alls ekkert svo slæmur,“ segir hann. Auk þess að fá erlendu ferðamennina í mat keyrði hann með þá um bæinn og nágrennið og sýndi þeim umhverfið. „Svo vorum við svo heppin að um kvöldið voru tónleikar hér með Ragga Bjarna, Bubba og fleirum sem þau skelltu sér á. Ég gat ekki betur séð að þeim fyndist þetta stórkostlegt,“ segir Guðmann og bætir við: „Ein þeirra spurði mig: Hvar er Eva? og ég skildi ekkert. Svo ég spurði hana hvað hún meinti. Hún svaraði þá að hún hefði hreinlega haldið að hún væri í paradís.“
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Fleiri fréttir Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Sjá meira