Kveða kynþáttafordóma í kútinn með korti Guðrún Ansnes skrifar 17. mars 2015 12:30 Fríða Rós Valdimarsdóttir með kortin sem landsmenn munu fá inn um lúguna áður en vikunni lýkur. Vísir/Pjetur
Í vikunni verða send út eitt þúsund póstkort um land allt. Skilaboð kortanna eru skrifuð af ungu fólki og munu berast inn um lúgur fólks um allt land. Verkefnið gengur undir nafninu Hönd í hönd og er liður í Evrópuviku gegn kynþáttafordómum sem Mannréttindaskrifstofa Íslands stendur fyrir. „Þessi skemmtilegu póstkort eru send handahófskennt vítt og breitt um landið á næstunni og er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um kynþáttafordóma,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir hjá Mannréttindaskrifstofunni. Evrópuvikan er fastur liður í starfi stofunnar og fer nú af stað í sjötta skiptið. „Markmið okkar er að kveða niður þá kynþáttafordóma sem fyrirfinnst í Evrópu í dag. Við viljum jafnframt kalla á meira umburðarlyndi. Samfélagið er að breytast í fjölmenningarsamfélag og við eigum að vera þakklát fyrir það,“ segir Fríða Rós.Fríða Rós ValdimarsdóttirVikan mun einkennast af vitundarvakningunni, en í dag munu tuttugu og sex grunnskólar leggja sitt á vogarskálarnar með því að haldast hönd í hönd umhverfis skólann sinn. „Allir eru velkomnir í þann gjörning og vit hvetjum fólk til að mæta og vera með þar,"segir Fríða Rós. Fríða Rós segir umræðuna mikilvæga, en Mannréttindaskrifstofa fái mikið af málum inn á borð til sín er varða kynþáttafordóma hér á landi. „Okkur sýnist versta staðan vera úti á vinnumarkaði, þar sem oft er litið fram hjá fólki með erlend nöfn í stórum stíl, burtséð frá menntun og öðru slíku.“ „Við hvetjum alla til að vera með. Verkefninu verður svo slaufað með málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag,“ bætir Fríða Rós við.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira