Ný lög um almannatryggingar verða dýr Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. apríl 2015 07:00 Frá starfamessu 2012. Fleiri heltast úr lestinni vegna örorku á vinnumarkaði en bætast við. Nýju almannatryggingakerfi er ætlað að vinna á móti þróuninni. Fréttablaðið/vilhelm
Starf þingnefndar sem vinnur að heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins er langt komin. Pétur H. Blöndal, formaður nefndarinnar, segir smáhlé hafa orðið á störfum hennar, en vinna haldi áfram á vettvangi hennar eftir páska. Pétur segist hins vegar ekki treysta sér til að lofa því að lög um nýtt almannatryggingakerfi verði tekið til umræðu núna á vorþinginu. „Þetta er ansi viðamikið verk og mikill kostnaður sem fylgir þessu.“ Núna sitji tryggingastærðfræðingur við að reikna út kostnaðinn sem fylgi þeim breytingum sem fyrirséð sé að nefndin leggi til. Meginkostnaðurinn fylgi hins vegar öðrum þáttum en snúi til dæmis að Virk starfsendurhæfingarsjóði og slíkum úrræðum. „Í heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins eru margir þættir. Eitt er til dæmis veruleg einföldun kerfisins,“ segir Pétur.Þannig þurfi til dæmis að endurskoða vinnulag í kring um framfærsluuppbót sem tekin var inn í kerfið 2008 rétt fyrir hrun og svo lagfærð í lögunum 2009. Við breytinguna hafi tekjur þeirra sem lægstar höfðu bæturnar batnað um allt að fimmtung, en á móti hafi svo komið skerðing á tekjum þeirra sem voru betur settir og nutu einnig annarra lífeyrisgreiðslna. Þarna hafi orðið til mikil óánægja. „En niðurstaða nefndarinnar er að lífeyrisþegar hafi farið allra hópa best í gegn um hrunið, þrátt fyrir að umræðan sé einhver allt, allt önnur. En um leið skekkti framfærsluuppbótin allt kerfið og gerði það mjög óréttlátt.“ Því fylgi mikill kostnaður að vinda ofan af þessu. Þá segir Pétur vinnu nefndarinnar miða að því að horfið verði frá kerfi örorkumats og tekið upp starfsgetumat í staðinn. „En forsenda fyrir því er að yfirleitt sé hægt að endurhæfa fólk.“ Þar sé hins vegar til mikils að vinna eins og komið hafi fram í tölum um fjölgun fólks sem þiggur örorkubætur. Þannig hafa forsvarsmenn Virk og samtaka á vinnumarkaði bent á að árlega hverfi nú 12 til 15 hundruð manns af vinnumarkaði vegna örorku. Það séu fleiri en nemi náttúrulegri fjölgun á vinnumarkaði. Pétur segir nefndina sem hann stýrir vera þriðju þingnefndina sem fjallar um starfsgetumatið. Um sé að ræða þverpólitíska nefnd sem ætlað sé að finna lausnir áður en lagt verður í gerð frumvarps. „En það er búið að vinna ansi mikið í þá veru.“Áherslurnar aðrar í starfsgetumatiÍ kynningu velferðarráðuneytisins frá 2012 á hugmyndum sem þá voru uppi um endurskoðun á lögum um almannatryggingar kemur fram að þegar starfsgetumat kemur í stað örorkumats sé lögð áhersla á getu fólks til að vinna fremur en vangetu. Þá segir á vef Virk starfsendurhæfingarsjóðs að starfsgetumat sé heildrænt mat sem meti færni einstaklingsins út frá líkamlegum, andlegum og félagslegum forsendum til að taka virkan þátt í samfélaginu. „Það metur styrkleika og hindranir einstaklingsins með tilliti til atvinnuþátttöku og getu hans til að afla sér tekna.“ Lögð sé áhersla á að virkja einstaklinginn, bjóða honum fljótt einstaklingsmiðaða endurhæfingu og fjarlægja vinnuletjandi farartálma. „Litið er á starfsgetumat sem eitt órofa ferli mats annars vegar og virkniaukandi aðgerða og/eða starfsendurhæfingar og meðferðar hins vegar.“
Tengdar fréttir Tæplega þrír fjórðu virkir á atvinnumarkaði eftir útskrift Frá stofnun VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs hafa 3.800 einstaklingar, af þeim 7.700 sem til sjóðsins hafa leitað, "útskrifast“ eða lokið þjónustu frá sjóðnum. 3. febrúar 2015 07:00 Upp undir 80 prósent hafa stundað vinnu í veikindum Ungt fólk er líklegra til þess að mæta veikt í vinnuna en þeir sem eldri eru, að því er sjá má í kjarakönnun BHM. Margir vinna heima í eigin veikindum og/eða veikindum barna sinna. Fáir mæta þó með veikt barn í vinnuna. 18. nóvember 2014 07:00 Hafna 200 milljónum Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK ætlar að hafna þeim 200 milljónum sem honum er ætlaðar í fjörlögum næsta árs. 19. desember 2014 16:15 Arðbærara en sæstrengur Ríkið veitir yfir einn og hálfan milljarð króna til Virk starfsendurhæfingarsjóðs á árunum 2015 til 2017 samkvæmt nýgerðum samningi. Skref til endurskipulagningar í átt til starfsgetumats í stað örorkubóta. 6. mars 2015 07:00 Vilja virkja hæfileika þeirra sem búa við skerta starfsgetu Sá hópur telji um sautján þúsund manns en ekki séu allir í vinnufæru ástandi. Í þeim hópi séu þó margir sem vilji vinna þrátt fyrir að vera ekki fullfrískir. 4. nóvember 2014 08:00 Nær helmingur blindra og sjónskertra hefur atvinnu Atvinnuþátttakan er mikil hér miðað við önnur lönd. Eigum samt langt í land með að jafna atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra við almenna atvinnuþátttöku hér, segir Halldór Guðbergsson, atvinnu- og virkniráðgjafi. 14. nóvember 2014 07:00 Segja óvissu fylgja framlaginu Stjórn starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK hefur ákveðið að afþakka 200 milljónir króna sem Alþingi veitti til starfsins í fjárlögum fyrir árið 2015. 22. desember 2014 09:30 Sex af hverjum tíu komnir í vinnu eftir þrjú ár á bótum Ný rannsókn gefur vísbendingar um að allstór hópur langtímaatvinnulausra hefði getað farið mun fyrr út á vinnumarkaðinn eða í skóla. Sýnir einnig að hópur fólks stundar svarta vinnu á atvinnuleysisbótum. 29. janúar 2015 07:00 Mestu máli skiptir að allir fái endurhæfingu við hæfi Áætlaður kostnaður ríkis og lífeyrissjóða vegna örorkubyrðar á þessu ári er 55 milljarðar króna. Níu prósent fólks á vinnualdri eru öryrkjar sem er með því hæsta sem gerist. ÖBÍ segir úrræði þurfa að vera einstaklingsmiðuð. 12. janúar 2015 07:00 Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur MAST hefur gert athugasemdir og ítrekað kröfur um úrbætur Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Sjá meira
Tæplega þrír fjórðu virkir á atvinnumarkaði eftir útskrift Frá stofnun VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs hafa 3.800 einstaklingar, af þeim 7.700 sem til sjóðsins hafa leitað, "útskrifast“ eða lokið þjónustu frá sjóðnum. 3. febrúar 2015 07:00
Upp undir 80 prósent hafa stundað vinnu í veikindum Ungt fólk er líklegra til þess að mæta veikt í vinnuna en þeir sem eldri eru, að því er sjá má í kjarakönnun BHM. Margir vinna heima í eigin veikindum og/eða veikindum barna sinna. Fáir mæta þó með veikt barn í vinnuna. 18. nóvember 2014 07:00
Hafna 200 milljónum Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK ætlar að hafna þeim 200 milljónum sem honum er ætlaðar í fjörlögum næsta árs. 19. desember 2014 16:15
Arðbærara en sæstrengur Ríkið veitir yfir einn og hálfan milljarð króna til Virk starfsendurhæfingarsjóðs á árunum 2015 til 2017 samkvæmt nýgerðum samningi. Skref til endurskipulagningar í átt til starfsgetumats í stað örorkubóta. 6. mars 2015 07:00
Vilja virkja hæfileika þeirra sem búa við skerta starfsgetu Sá hópur telji um sautján þúsund manns en ekki séu allir í vinnufæru ástandi. Í þeim hópi séu þó margir sem vilji vinna þrátt fyrir að vera ekki fullfrískir. 4. nóvember 2014 08:00
Nær helmingur blindra og sjónskertra hefur atvinnu Atvinnuþátttakan er mikil hér miðað við önnur lönd. Eigum samt langt í land með að jafna atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra við almenna atvinnuþátttöku hér, segir Halldór Guðbergsson, atvinnu- og virkniráðgjafi. 14. nóvember 2014 07:00
Segja óvissu fylgja framlaginu Stjórn starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK hefur ákveðið að afþakka 200 milljónir króna sem Alþingi veitti til starfsins í fjárlögum fyrir árið 2015. 22. desember 2014 09:30
Sex af hverjum tíu komnir í vinnu eftir þrjú ár á bótum Ný rannsókn gefur vísbendingar um að allstór hópur langtímaatvinnulausra hefði getað farið mun fyrr út á vinnumarkaðinn eða í skóla. Sýnir einnig að hópur fólks stundar svarta vinnu á atvinnuleysisbótum. 29. janúar 2015 07:00
Mestu máli skiptir að allir fái endurhæfingu við hæfi Áætlaður kostnaður ríkis og lífeyrissjóða vegna örorkubyrðar á þessu ári er 55 milljarðar króna. Níu prósent fólks á vinnualdri eru öryrkjar sem er með því hæsta sem gerist. ÖBÍ segir úrræði þurfa að vera einstaklingsmiðuð. 12. janúar 2015 07:00