Staðfest að Ólafur spilar með KIF | Sjáðu bestu tilþrif hans í Meistaradeildinni Tómas Þór Þóraðrson skrifar 10. mars 2015 08:30 Ólafur Stefánsson átti tvo ótrúlega leiki í úrslitum Meistaradeildarinnar 2008 og 2009. vísir/afp
Meistaradeildin í handbolta staðfestir á Facebook-síðu sinni að Ólafur Stefánsson er orðinn löglegur og verður í leikmannahópi KIF Kolding Köbenhavn þegar liðið heimsækir Prvo Zagreb í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á laugardaginn. Ólafur lagði skóna á hilluna eftir landsleik gegn Rúmeníu 16. júní 2013, en ákvað að taka slaginn með Danmerkurmeisturunum í tveimur leikjum í Meistaradeildinni vegna meiðslavandræða liðsins. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari KIF sem á fyrir höndum tvo erfiða leiki gegn króatíska stórliðinu Prvo Zagreb. Fyrri leikurinn fer fram í Zagreb á laugardaginn. Áhuginn á endurkomu Ólafs er eðlilega mjög mikill þar sem um er að ræða einn besta handboltamann sögunnar, en slegist var um viðtöl við hann eftir fyrstu æfinguna hjá KIF. Facebook-síða Meistaradeildarinnar fagnar endurkomu Ólafs og setti saman myndband með tilþrifum kappans, en Ólafur hefur auðvitað átt margar magnaðar stundir í Meistaradeildinni. Hann vann keppnina einu sinni með Magdeburg og þrisvar sinnum með Ciudad Real. Hann var langbesti leikmaður Ciudad þegar liðið vann Meistaradeildina 2008 og 2009, en Ólafur vann seinni leikina í báðum einvígunum nánast upp á sitt einsdæmi. Hér að neðan má sjá myndbandið sem Meistaradeildin setti saman til að fagna endurkomu Óla Stef.Post by EHF Champions League.
Handbolti Tengdar fréttir Aron: Ef einhver getur gert þetta er það Óli Vonast til að Ólafur Stefánsson geti spilað tvo leiki í Meistaradeildinni. 2. mars 2015 17:41 Velkominn til baka | Sjáðu viðtal við Óla Stef Ólafur Stefánsson hefur tekið skóna af hillunni og hefur hafið æfingar með KIF Kolding Köbenhavn í Danmörku. 8. mars 2015 20:45 Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira
Aron: Ef einhver getur gert þetta er það Óli Vonast til að Ólafur Stefánsson geti spilað tvo leiki í Meistaradeildinni. 2. mars 2015 17:41
Velkominn til baka | Sjáðu viðtal við Óla Stef Ólafur Stefánsson hefur tekið skóna af hillunni og hefur hafið æfingar með KIF Kolding Köbenhavn í Danmörku. 8. mars 2015 20:45