Eyþór Rúnarsson býr til dásamlega góðan kjúkling með bragðgóðu hrásalati, frábær sumarréttur.
Fylltar kjúklingabringur í sætkartöfluhjúp með eplahrásalati
Kjúklingurinn
4 stk kjúklingabringur
1 stk tex mex smurostur
100 gr blaðlaukur
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Skerið blaðlaukinn fínt niður og blandið honum saman við smurostinn, setjið svo blönduna í sprautupoka. Skerið í miðjuna á kjúklingabringunum hálfa leið og svo 1-2 skurði sitti hvoru megin við skurðinn og búið þannig til vasa sem að þið sprautið svo fyllingunni inn í. Kryddið bringurnar með salti og pipar
Sætkartöfluhjúpur
2 stk sætar kartöflur
100 gr smjör
fínt rifinn börkur af 1 appelsínu
50 gr fínt rifið engifer
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Skrælið sætu kartöfluna og rífið hana svo niður með grófu rifjárni. Hitið pönnu með smjöri og eldið kartöflurnar í ca 2 mín á pönnunni. Blandið appelsínuberkinum og engiferinu út í sætu kartöflurnar og smakkið til með salti og pipar. Leggið ca 35 cm tvöfaldan álpappír á borðið og setjið 1/3 af sætukartöflunni á álpappírinn. Raðið bringunum ofan á sætu kartöflurnar og hjúpið svo bringurnar með restina af sætu kartöflunum. Leggið álpappírinn yfir bringurnar og setjið bringurnar á heitt grillið og eldið í 20 – 25 mín, fer eftir stærð á bringunum. Gott er að hafa auka grillgrind á grillinu til að forða því að sætkartöfluhjúpurinn undir brenni.
Hrásalat
2 stk fínt skorin græn epli
½ haus fínt skorið hvítkál
3 stk fínt skorinn vorlaukur
1 dós 18 % sýrður rjómi
2 msk himneskt majónes
½ búnt fínt skorinn kóriander
½ stk fínt skorinn rauður chili
1 stk lime (safinn og fínt rifinn börkurinn)
2 msk kókospálmasykur eða önnur sæta eftir smekk
Blandið majónesinu og sýrða rjómanum saman ásamt sykrinum og limeberkinum. Blandið öllu hinu hráefninu saman við og smakkið til með salti og smá limesafa.
Fylltar kjúklingabringur í sætkartöfluhjúp með eplahrásalati

Tengdar fréttir

Blómkálssushi með grillaðri risarækju að hætti Eyþórs
Eyþór Rúnarsson býr hér til frábært sushi. Eva Laufey kíkir í heimsókn til Eyþórs Rúnarssonar en hann sýndi henni snilldartakta í eldhúsinu. Eyþór er mættur aftur á skjáinn á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum með gómsæta sumar og grillrétti við allra hæfi.

Grilluð epli með hnetusmjörs- og mjólkursúkkulaðifyllingu
Eyþór Rúnarsson bjó til ómótstæðilegan eftirrétt í þætti sínum Grill- og sumarréttir Eyþórs á Stöð 2 í gærkvöldi.

Léttir sumarlegir réttir á grillið
Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari er með vikulegan matreiðsluþátt á Stöð 2 þar sem hann töfrar fram girnilega rétti sem allir henta á grillið. Hér grillar hann bleikju í salat, girnilega samloku og ananas í eftirrétt.

Gómsætt á grillið í sumar
Eyþór Rúnarsson fór nýverið af stað með grillþætti á Stöð 2. Í þætti gærkvöldsins voru einfaldar uppskriftir á matseðlinum.

Grilluð T-bone steik með Chimichurri og ómótstæðilegu kartöflusalati
Hinn frábæri sjónvarpskokkur Eyþór Rúnarsson hefur snúið aftur á skjáinn á Stöð 2 á fimmtudögum. Í þáttunum í sumar kemur hann til með að búa til gómsæta og girnilega rétti beint af grillinu.