Innlent

Útskrifuð af gjörgæslu eftir vélsleðaslys

Bjarki Ármannsson skrifar
Stúlkan liggur nú á Barnaspítala Hringsins.
Stúlkan liggur nú á Barnaspítala Hringsins. Vísir/Heiða
Stúlka sem lögð var inn á gjörgæslu í gær eftir alvarlegt vélsleðaslys í Austur-Húnavatnssýslu var fyrr í kvöld útskrifuð af gjörgæsludeild. Hún liggur nú á Barnaspítala Hringsins.

Stúlkan er önnur tveggja sem slasaðist þegar vélsleði þeirra lenti undir heyrúlluvagni síðdegis í gær. Hin stúlkan var útskrifuð af spítalanum snemma í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×