Sorglegur 17. júní Curver Thoroddsen skrifar 18. júní 2015 16:54 Hrikalega finnst mér leiðinlegt og sorglegt að fámennur hópur hafi skemmt 17. júní fyrir okkur öllum hinum. Þessir örfáu tugir dónalegra og hrokafullra einstaklinga hafa vanvirt á ósmekklegan hátt meirihluta Íslendinga trekk í trekk á seinustu tveimur árum. Þeir hafa miskunarlaust tekið hag fámenns hóps efnafólks fram fyrir hag meirihluta þjóðarinnar án þess að skammast sín og veigra sér ekki við að skerða hlut þeirra sem minnst mega sín ef svo ber undir. Á stuttum tíma hefur þessi fámenni hópur þingmanna Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins aukið stéttaskiptingu og ójöfnuð í landinu svo um munar. Þau hafa síendurtekið gengið fram með valdhroka og sent þjóðinni langt nef og meira að segja reynt að hrifsa frá landsmönnum sameiginlegar auðlindir og mannréttindi. Forsetisráðherra vanvirðir þingið og gefur þjóðinni fingurinn með jöfnu millibili. Skellir sér á fótboltaleik á meðan lög eru sett á lögbundinn rétt fólks til að reyna að bæta niðurlægjandi kjör sín yfir áralangan tíma með neyðarúrræðinu sem verkfall er, hann reynir að yfirtaka viðtalsþætti, fær sér köku, mætir ekki í vinnuna þegar hitamál eru í gangi eða mætir einhversstaðar í tveimur gerðum af skóm til að verða Íslandi örugglega til skammar úti í hinum stóra heimi. Ráðherrar ljúga upp í opið geðið á Alþingi en sjá sér ekki sóma sinn í að hætta þegar upp kemst um óheiðarleikann, skera niður sjóði sem hugsaðir eru til að byggja upp og styrkja menningu landsins á faglegan hátt en veita óumbeðna styrki með SMS-skilaboðum (þá helst til félaga í sínu kjördæmi), fella niður gjöld á stór arðbær fyrirtæki en krippla og veikja heilbrigðiskerfið leynt og ljóst svo að hægt sé að einkavæða það seinna. Allt á kostnað veikra og aðstandenda þeirra. Fólk er reitt, sárt og hneykslað á framferði þessara fáu einstaklinga en þeir virðast ekkert vilja hlusta á rödd almennings. Þeir þráast við að halda hausnum sem fastast í rassgatinu á sér þó svo að fleiri þúsundir af góðviljuðu fólki séu að reyna að hjálpa þeim að rífa hann út. Það er eins og hlutverkin hafi á einhvern hátt ruglast og snúist við í huga ríkisstjórnarinnar. Eins og þessir fáu valdamiklu einstaklingar upplifi sig ekki lengur sem þjóna þjóðarinnar heldur finnist þeim að fólkið í landinu sé einhverskonar sjálfsvirðingarlaus mannauðsmassi sem megi nota til að þjóna hagsmunum og hugmyndum þeirra sjálfra og annara sem tengjast þeim. Kannski má þetta skýrast að einhverju leyti á rofi milli raunveruleika og skynjunar þessara einstaklinga á ástandinu og stemmningunni sem ríkt hefur í þjóðfélaginu seinustu ár. Málin eru komin í svo mikið óefni og hrokinn er svo gegndarlaus hjá þessum ráðamönnunum að tiltölulega stór hópur Íslendinga sá sig tilneyddan að mótmæla á sjálfan 17. júní til að reyna að vernda hag sinn og framtíð barnanna sinna í stað þess að njóta hans sem stoltir þegnar þessa áður friðsæla lands með ástvinum og fjölskyldu. Hvenær ætlið þið ráðamenn að meðtaka skilaboðin sem fólkið er að senda ykkur? Take a hint! Það er sko í alvörunni verið að mótmæla á 17. júní. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson Skoðun Halldór 26.07.2025 Halldór Skoðun Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson skrifar Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Ein af hverjum fjórum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Vertu drusla! Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tekur sér stöðu með Evrópusambandinu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Feluleikur ríkisstjórnarinnar? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Ég heiti Elísa og ég er Drusla Elísa Rún Svansdóttir skrifar Skoðun Grindavík má enn bíða Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Aðventukerti og aðgangshindranir Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Lífið í tjaldi á Gaza Viðar Hreinsson,Israa Saed skrifar Skoðun Gaza og sjálfbærni mennskunnar Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Börnin og hungursneyðin í Gaza Sverrir Ólafsson skrifar Skoðun Kynbundið ofbeldi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Aðdragandi aðildar þarf umboð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson skrifar Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Sjá meira
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun
Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar
Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun