Hafnfirðingar breyta heimilum í tónleikahús Guðrún Ansnes skrifar 21. mars 2015 13:30 Kristinn fór á sams konar hátíð í Færeyjum og sneri aftur hugfanginn af hugmyndinni um að koma svipuðu á koppinn í Hafnarfirði. Vísir/Pjetur „
Við ætlum að hafa þetta kósý og kveðja þennan erfiða vetur almennilega“ segir Kristinn Sæmundsson, sem stendur fyrir einhverri huggulegustu tónlistarhátíð hér á landi. Heima í Hafnarfirði er tónlistarveisla með öðruvísi sniði en þekkist hér á landi. „Allir tónleikarnir eru haldnir inni á heimilum fólks í Hafnarfirði og við gerum heimsóknum því hátt undir höfði,“ útskýrir Kristinn. Hátíðin er haldin síðasta vetrardag, þann 22. apríl næstkomandi og er vel til þess fallin að fagna sumrinu. Hátíðin var haldin í fyrsta skipti í fyrra og hefur nú fest sig í sessi meðal bæjarbúa. Hugmyndin á rætur sínar að rekja til Færeyja og fékk Kristinn þá flugu í höfuðið að þetta væri eins og sniðið fyrir Hafnarfjörð og aftur varð ekki snúið. „Tónleikarnir verða haldnir í þrettán heimahúsum og munu því þrettán hljómsveitir stíga á svið frá klukkan átta og lýkur fjörinu um ellefu. Þá geta gestir haldið áfram í miðbæ Hafnarfjarðar.“ Þeir tónlistarmenn sem boðað hafa komu sína eru til dæmis KK, Jóhanna Guðrún, Herbert Guðmundsson, Dimma, Jón Jónsson, Friðrik Dór, Hjörtur Howser og Langi Seli mun láta sjá sig ásamt Skuggunum. Hafnarfjörður verður undirlagður tónleikum, því utandagskrártónleikar verða úti um allan bæ. „Svo verður boðið upp á fyrirbærið Opinn míkrafón, þar sem fólk getur skráð sig og troðið upp eins og því sýnist. Þessi liður gekk svo vel í fyrra að við ætlum að gera enn meira úr honum í ár,“ upplýsir Kristinn glaður í bragði. Kristinn er enginn nýgræðingur í tónlistarsenunni en hann gengur gjarnan undir nafninu Kiddi Kanína. Hann átti Hljómalind á sínum tíma og hefur verið iðinn við að koma hljómsveitum á kortið, svo sem Sigur Rós. Hann er einnig maðurinn á bak við fjölda tónleika hérlendis og flutti meðal annars hingað til lands Prodigy, Shellac og Will Oldham. Hann tók sér þrettán ára pásu frá tónlistarsenunni en kemur nú tvíefldur til leiks. „Miðasala gengur verulega vel og geri ég ráð fyrir að uppselt verði áður en langt um líður,“ segir Kristinn í lokin.
Mest lesið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Tíska og hönnun Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Lífið samstarf Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Tónlist Krefja Apple um íslensku Menning Fleiri fréttir Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Sjá meira