Byggði ölstofu úr snjó 4. apríl 2015 10:00 Þessar myndir af dansandi norðurljósunum tók Ragnheiður Guðjónsdóttir, vinkona Elízu, þegar hún og fleiri komu í óvænta heimsókn til hennar í Landmannalaugar. Mynd/Ragnheiður Guðjónsdóttir
Elíza Lífdís Óskarsdóttir, skálavörður, á erfitt með að ímynda sér betri stað til að vera á en undir himni fullum af blikandi stjörnum og dansandi norðurljósum í Landmannalaugum. Hún segir að það mikilvægasta sem skálavörður þurfi að kunna sé að hella upp á gott kaffi.Í desember árið 2013 seldi Elíza Lífdís Óskarsdóttir íbúðina sína, sagði upp vinnunni og ákvað að stíga rækilega út fyrir þægindarammann. „Það var alls ekki á stefnuskránni, þegar ég var svona rétt að detta í 27 ára aldurinn, en ég notaði ágóðann af íbúðarsölunni til að fara í köfunarferðalag um heiminn sem stóð í fjóra mánuði. Þegar ég kom heim til Íslands, heimilislaus, með vísakortið rauðglóandi, alla reikninga ógreidda þá hugsaði með mér að þetta hlyti að reddast. Það gerir það alltaf,“ segir Elíza og brosir. Það gerði það svo sannarlega því nokkrum dögum síðar fékk hún símtal um að það vantaði skálavörð í Landmannalaugar. Hún pakkaði niður í tösku, var komin þangað tveimur dögum síðar og nánast búin að vera þar síðan.Ljúft líf í Landmannalaugum „Ætli orðið ljúft lýsi ekki lífinu í Landmannalaugum best. Ég bý á einum af fegurstu stöðum á landinu og fæ að upplifa það í gegnum alla þá sem að hingað koma, einmitt í þeim tilgangi að njóta þess sem náttúra Íslands hefur upp á bjóða. Vissulega koma dagar þar sem að allt er erfitt, blindbylur og ekkert við að vera en dagarnir þegar himinninn er heiður og sólin skín eða þegar tunglið lýsir upp skammdegið, stjörnurnar blika á himnum og norðurljósin dansa fyrir ofan mig gera það að verkum að ég á erfitt með að ímynda mér betri stað til að vera á.“Magnið af snjó kom á óvart Skálavörður gegnir margþættu starfi en Elíza segist vera allt í senn, þerna, smiður, hjúkka, pípari, sáluhjálpari, vélvirki, kokkur, veðurfræðingur, rafvirki og upplýsingamiðstöð. „Skálaverðir þurfa líka að eiga auðvelt með að tala við fólk og koma vitinu fyrir það ef það er að æða út í einhverja vitleysu, sér í lagi ef það þekkir ekki landið eða veðráttuna hérna. Það mikilvægasta er samt að kunna að hella upp á kaffi. Eins ómerkilega og það kann að hljóma þá er það held ég það sem að skiptir mestu. Það sem hefur hins vegar komið mér mest á óvart er hversu mikinn snjó þarf að moka hérna.“Elíza hefur verið skálavörður í Landmannalaugum frá því í haust en tók sér frí um jólin. Nú hefur hún dvalið þar sleitulaust í í rúmar átta vikur.Ekki einmanalegt starf Straumurinn af Íslendingum í Landmannalaugar eykst þegar daginn fer að lengja en í vetur hefur fólk í gönguskíða- og snjóþrúguferðum, dagstúrum og helgarafslöppun komið þangað. „Það hefur bara liðið ein helgi þar sem að enginn hefur komið, þá var kolófært, mjög mikil lausamjöll og Jökulkvíslin erfið yfirferðar, þá kom enginn bíll hingað í rúma viku. Það kom samt gönguskíðahópur og þyrla, svo ég var ekki alveg ein alla vikuna,“ segir Elíza. Aðspurð neitar hún því samt að starfið sé einmanalegt. „Ég held ég hafi oftar verið einmana í bænum umkringd af fólki heldur en hér. Í bænum eru allir svo uppteknir af sjálfum sér en hér gefur fólk sér tíma, sest niður með kaffi og spjallar um daginn og veginn. Ég væri að ljúga ef ég segðist ekki sakna þess stundum að hafa einhvern annan í húsinu með mér, sérstaklega á kvöldin þegar kemur að eldamennskunni, mér finnst ótrúlega gaman að elda en að elda fyrir einn er mjög leiðigjarnt til lengdar.“Leyniheimsókn og norðurljós Þegar Elíza var búin að vera í mánuð í Landmannalaugum birtust fjórir félagar hennar úr björgunarsveitinni upp úr þurru á laugardegi. „Þau komu í leyniheimsókn sem mér þótti afskaplega vænt um. Það skemmdi sannarlega ekki fyrir að það kvöld upplifði ég flottustu norðurljós sem ég hef á ævi minni séð. Við stóðum úti langt fram á nótt öskrandi upp yfir okkur eins og smákrakkar,“ segir hún og hlær. Hjónasæng í Hel Elíza fer í frí í lok apríl enda lokað þá í skálanum vegna leysinga en hún snýr aftur um leið og opnar í júní. Hún hefur ekki áhyggjur af því að leiðast enda gerir hún ýmislegt sér til dægrastyttingar, meðal annars býr hún til snjóhús. „Eins undarlega og það hljómar og eins leiðinlegt og mér þykir að moka frá hurðum þá er ég búin að moka snjóhús með fullri lofthæð sem að rúmar auðveldlega átta manns og hefur meira að segja innbyggða hjónasæng. Það fékk hið lýsandi nafn Hel og er án efa flottasta netkaffihús/ölstofa landsins.“
Mest lesið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Lífið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“