Þvílík stemning hjá stuðningsmönnum Íslands í Katar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 16. janúar 2015 15:37 Hér má sjá myndir frá Katar. Þvílík stemning! Myndir/Bóas Börkur
Stuðningsmenn Íslands, sem eru staddir úti í Katar eru tilbúnir í slaginn, en í kvöld leika Íslendingar gegn Svíum, eins og svo margir vita. Bóas Börkur Bóasson sló í gegn með frábærri ferðasögu sem birtist á Vísi í gær. Hann segir stemninguna vera frábæra í hópnum og það allir séu tilbúnir í slaginn.Sjá einnig:Tæplega 70 Íslendingar á leiknum í kvöld Hér á meðfylgjandi myndum má sjá hörðustu stuðningsmenn landsliðsins, sem eru með andlitsmálningu og í þessum glæsilegu búningum. „Ég held að myndavélarnar eigi eftir að elska þau á leiknum í kvöld," segir Bóas Börkur og bætir við: „Við hin erum bara eins og í felulitum miðað við þau."Frábær opnunarhátíð Í gær fór hópurinn á opnunarhátíð keppninnar, þar sem Jón Jónsson tróð meðal annars upp. Bóas segir hann hafa staðið sig með prýði. „Hann söng sinn part af alkunnri snilld og gerði þetta mjög sérstakt." Hann segir þó ákveðna erfiðleika hafa átt sér stað í upphafi hátíðarinnar. „Hópurinn kom tímanlega í höllina á opnunarhátíðina, ekki veitti af því utan húss var skipulagið í molum og við send hring eftir hring að „réttum" inngangi sem reyndist svo seinna vera rangur." En svo sá hópurinn hvernig höllin leit út að innan: „En innanhúss var allt til sóma, hundruð manna að vísa veginn og höllin er byggð þannig að utan við völlinn er hægt að ganga allan hringinn og það eru 16 inngangar inn í salinn sjálfan, svo eru litlir veitingastaðir, kaffisjoppur og klósett allan úthringinn, auk VIP staða og enn má nefna tvo upphitunarsali sem eru þónokkuð flottir. Sem bliknar nú alveg þegar gengið er inní 15.500 manna salinn, með risaskjái á alla vegu, leisergeisla og díóðuskilta sem þekja allan hringinn milli hæða." Hann segir hátíðina sjálfa hafa verið afar vel heppnaða. „Öll lönd voru sátu í sérmerktum sætum og við kynningu hvers lands voru áhorfendur þess lands lýstir upp og var það mjög vel heppnað „trikk“. Og eftir hátíðina þustu inná gólfið um eitt hundrað manns, hver með sitt hlutverk, allt gólfið var hreinsað upp á met tíma, því stutt var í að upphitun hæfist fyrir handboltaleikinn fyrsta. Virtist frekar vera eins og brunaútsala, menn hreinlega hlupu út úr salnum með, sviðsparta,dúka,hátalara,ljós og snúrur.“ Nú er hópurinn tilbúinn að fara að styðja landsliðið og því ekki úr vegi að segja áfram Ísland!
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Fleiri fréttir Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Sjá meira