Vinsælasta poppsveit Norður-Kóreu tekur Kötukvæði fyrir hinn mikilfenglega leiðtoga Margrét H. Gústavsdóttir skrifar 19. janúar 2015 10:36 Youtube
Hvað skyldu vera margar vinsælar popphljómsveitir í Norður-Kóreu? Jú, ein og sú heitir Morabong band. Morabong band kom fyrst fram í júní 2012. Það er í sama mánuði og lagið Gangnam Style með Psy sló í gegn, tilviljun? Kannski. Morabong bandið skipa 18 tónlistarkonur sem eru allar sérvaldar af hinum mikilfenglega þjóðarleiðtoga Kim Jong-un. Morabong er jafnframt eina poppsveitin í landinu. Hér eru þær hressar á gamlársdag 2013 að taka hið hátíðlega, en jafnframt ofurhressa lag, "Without a Break" og slá ekki slöku við. Dömurnar flytja fjölbreytta popptónlist án þess að fipast og eru óaðfinnalega tilhafðar. Í stuttum svörtum kjólum með skart og skraut. Á risatjaldi í bakgrunni rúlla svo myndir af Kim Jong-un. Hvað annað? Af töktunum í tónlistarmönnunum má sjá að þær hafa stundað tónlistarnám frá blautu barnsbeini og eru allar mjög færar á hljóðfæri sín. Morabong bandið er ekki hefðbundið skemmtiefni frá Norður-Kóreu þar sem fólk lítur almennt út eins og tálgaðir tindátar með ríkisklippingar. Þær eru jafnvel stutthærðar og tónlistin er hress og lífleg. Hér er svo hápunkturinn. Á mínútu 5:43 má sjá stelpurnar taka Kötukvæði, sem fyrir áratugum sameinaðist þjóðarsál íslendinga og er árlega sungið í útilegum og við varðelda landsmanna um land allt. Lagið er eftir hinn austurríska Wilhelm Grosz en íslenski textinn var á sínum tíma samin af Sigurði Ágústssyni frá Birtingarholti. Að lokum er gaman að kíkja á sönghæfileika þessara ungu kvenna en þær myndu rúlla upp undankeppni ædolsins með þessum slaufum. Fagnaðarlætin í upphafi eru ekki síður áhugaverð en sperrtir gestirnir klappa ákaft og kyrja þegar leiðtoginn gengur í salinn. Tónlistarkonurnar hefja upp raust sína á mín 1:41 og þegar herlegheitunum líkur eftir rúma klukkustund hlaupa þær auðmjúkar út í sal til að fá samþykki leiðtogans.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Menningarsprautur í hvísluleik Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira