Dansar í Billy Elliot Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. mars 2015 13:00 „Mig langar að verða leikkona, læknir eða dansari,“ segir Rut Rebekka. vísir/pjetur
Dagarnir líða við dans og nám hjá Rut Rebekku Hjartardóttur. Hún er ein þeirra sem svífa um svið Borgarleikhússins í söngleiknum Billy Elliot.Hvað ertu gömul, Rut Rebekka? Ég er tíu ára en verð ellefu ára 13. mars.Í hvaða skóla ertu? Ég er í Fossvogsskóla.Hvernig er þessi vika hjá þér? Þetta er frumsýningarvika og því er mikið að gera, æfingar alla daga til klukkan ellefu á kvöldin. Hvernig hefur venjulegur dagur verið hjá þér undanfarið? Vakna til að fara í skólann en fer fyrr úr honum til að fara beint á æfingu. Eru margir krakkar á þínum aldri að dansa í Billy Elliot? Já, nokkrir, við krakkarnir í sýningunni erum á aldrinum 5-15 ára. Hvernig er að taka þátt í svona stórri sýningu? Mér finnst það mjög gaman og mikil forréttindi að vinna með svona góðum útlenskum dansþjálfurum og frábærum íslenskum leikurum. Hefurðu verið áður á sviði? Ekki í leikriti en ég hef tekið þátt í nemendasýningu JSB í Borgarleikhúsinu. Hvernig kom það til að þú varst valin? Þegar ég og vinkona mín, Guðrún Jane, unnum Dansbikarinn hjá JSB í fyrra stakk einn kennarinn upp á að ég færi í prufur fyrir Billy Elliot. Er langt síðan þú byrjaðir að dansa? Ég byrjaði í Ballettskóla Eddu Scheving fjögurra ára og fór svo í djassballett í JSB sjö ára. Áttu fleiri áhugamál? Já, ég spila á píanó og syng í kór en hef þurft að taka pásu í því eftir áramót. Hvað langar þig mest að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða leikkona, læknir eða dansari.
Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira