De Gea: Erfið en þroskandi reynsla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. október 2015 18:30 Vísir/Getty
David De Gea, markvörður Manchester United, segir að það hafi verið erfitt að sætta sig við að félagaskiptin við Real Madrid gengu ekki í gegn í lok sumars. Félögin voru búin að ná saman um félagaskiptin á síðustu stundu en gögnin skiluðu sér ekki til knattspyrnuyfirvalda á Spáni fyrr en eftir að glugganum var lokað. Aðeins munaði nokkrum mínútum. Louis van Gaal setti De Gea út úr liðinu í upphafi leiktíðarinnar á Englandi en eftir að aðilar sættust í upphafi síðasta mánaðar skrifaði De Gea undir nýjan fjögurra ára samning við United og hefur verið í byrjunarliðinu undanfarna sjö leiki. „Ég er þannig gerður að ég vil ekki dvelja við slæma hluti og erfiða tíma,“ sagði De Gea sem verður væntanlega í marki spænska landsliðsins þegar það mætir Lúxemborg í undankeppni EM á morgun. „Ég hef fengið að kynnast erfiðum stundum. Við verðum að halda áfram og slá ekki af. Maður lærir af öllu saman en erfiðu stundirnar hjálpa manni að þroskast og vaxa.“ „Allir sem starfa fyrir Manchester United bera virðingu fyrir mér. Ég reyni að hjálpa félaginu af bestu getu og er afar þakklátur því.“
Enski boltinn Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur Víkings og KR í Bestu deildinni Sport Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira