Rífur í sig friðargönguna í Langholtskirkju og fyrrverandi biskup breiðir út boðskapinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. desember 2015 15:56 Friðarmerkið sem grunnskólabörn og starfsfólk í Langholtsskóla mynduðu fyrir helgi í friðargöngunni. Vísir
Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragðafræðingur gagnrýnir harðlega þá ákvörðun skólayfirvalda í Langholtsskóla að hafa boðað til friðargöngu og leggja af kirkjuheimsóknir skólabarna. Heimsóknirnar séu mikilvægur liður í menntun barna um þær kristnu menningarhefðir sem samofnar hafa verið íslensku þjóðfélagi allt frá því land fyrst byggðist. Sú ákvörðun að standa fyrir samsöng á lagi John Lennon, Imagine, sé andtrúarbragðaboðun. Um sé að ræða trúarleg tákn sem sé afgreitt út af borðinu í eitt skipti fyrir öll án þess að tekið sé tillit til víðfeðms merkingarsviðs þeirra innan fjölda trúarbragða. Þetta kemur allt fram í greininni „Óþol í Langholtsskóla“ sem Bjarni Randver skrifaði í Morgunblaðinu í dag. Greinin hefur vakið mikla athygli og er Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands frá 1998 til 2012, deilir greininni á Facebook-síðu sinni. „Athygli vekur í stað hlutlægrar vettvangsferðar létu stjórnendur Langholtsskóla börnin syngja í lok friðargöngu eitt þekktasta dægurlag síðari ára til höfuðs trúarbrögðum, lagið Imagine eftir John Lennon í þýðingu Þórarins Eldjárns,“ ritar Bjarni og tekur dæmi um hvernig andtrúarbragðaboðun í allri sinni einfeldningu sé að finna í frumtexta Lennon eins og lesa má í greininni sem Séra Karl deilir á Facebook.Posted by Karl Sigurbjörnsson on Monday, December 21, 2015Bjarni Randver vísar í reglur Reykjavíkurborgar um samskipti grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög. „Heimsóknir á helgi- og samskomustaði trúar- og lífsskoðunarfélaga á skólatíma skulu eiga sér stað undir handleiðslu kennara sem liður í fræðslu um trú og lífsskoðanir, samkvmæt gildandi lögum og aðalnámskrá.“ Þarna sé ljóst að Langholtsskóli hafi brugðist segir Bjarni Randver.Að neðan má sjá myndband frá friðargöngunni sem tæplega fimmtán þúsund manns hafa horft á.
Tengdar fréttir Sjáðu hvað nemendur í Langholtsskóla gerðu í staðinn fyrir kirkjuferð Sitt sýnist hverjum um kirkjuferðir leikskóla- og grunnskólabarna en flestir hljóta að kunna að meta framtak nemenda í Langholtsskóla. 18. desember 2015 14:15 Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Sjáðu hvað nemendur í Langholtsskóla gerðu í staðinn fyrir kirkjuferð Sitt sýnist hverjum um kirkjuferðir leikskóla- og grunnskólabarna en flestir hljóta að kunna að meta framtak nemenda í Langholtsskóla. 18. desember 2015 14:15