Margrét Rósa ein besta þriggja stiga skyttan í bandaríska háskólaboltanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2015 16:00 Margrét Rósa í leik með íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum í ár. vísir/stefán
Landsliðskonan Margrét Rósa Hálfdanardóttir er að gera góða hluti með körfuboltaliði Canisius háskólans í Buffalo. Margrét, sem er á sínu öðru ári hjá Canisius, er í stóru hlutverki hjá liðinu en hún spilar 28,9 mínútur og skorar 10,6 stig að meðaltali í leik, flest allra í liði Canisius. Það er umtalsverð bæting frá því í fyrra þegar Margrét, sem er uppalin Haukakona, lék 14,6 mínútur að meðaltali í leik og skoraði 3,7 stig. Það sem meira er, þá er Margrét með frábæra nýtingu í þriggja stiga skotum á tímabilinu en 20 af 40 skotum hennar fyrir utan þriggja stiga línuna hafa ratað rétta leið. Það gerir skotnýtingu upp á 50% en Margrét er í 10. sæti yfir þá leikmenn sem eru með bestu þriggja stiga skotnýtinguna í NCAA-deildinni vestanhafs. Canisius hefur unnið sjö af 10 leikjum sínum í vetur og er í efsta sæti MAAC-riðilsins. Með liðinu leikur önnur íslensk landsliðskona, Sara Rún Hinriksdóttir, sem er á sínu fyrsta ári hjá Canisius. Sara er með 4,9 stig og 2,4 fráköst að meðaltali í leik í vetur.Only 10 players in nation shooting 50% from 3, with the group led by TCU's Toree Thompson pic.twitter.com/bFGTXYZ2yx— TCU WomensBasketball (@TCUWbasketball) December 24, 2015
Körfubolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Sjá meira