Erlent

Ljósi varpað á uppbyggingu ráðuneyta ISIS

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjölin hafa veitt hernaðarbandalaginu gegn ISIS, sem leitt er af Bandaríkjunum, upplýsingar um skotmörk og veikleika í uppbyggingu samtakanna og í olíuvinnslu þeirra.
Skjölin hafa veitt hernaðarbandalaginu gegn ISIS, sem leitt er af Bandaríkjunum, upplýsingar um skotmörk og veikleika í uppbyggingu samtakanna og í olíuvinnslu þeirra. Vísir/AFP
Íslamska ríkið hefur komið á legg sérstökum stofnunum til að halda utan um herföng eins og þræla, sölu fornminja, olíu og fleira. Það auðveldar þeim að halda yfirráðum á stórum svæðum í Sýrlandi og Írak. Skjöl sem bandarískir sérsveitarmenn komu höndum yfir þegar Abu Sayyaf var felldur hafa varpað nýju ljósi á uppbyggingu ISIS.

Abu Sayyaf var í raun yfirmaður fjármála ISIS og var hann felldur í maí. Gíslinum Kayla Mueller var um tíma haldið á heimili hans auk fjölmargra þræla samtakanna.

Sjá einnig: Bandarískir hermenn felldu háttsettan leiðtoga ISIS í Sýrlandi

Í samtali við Reuters fréttaveituna segja bandarískir embættismenn að skjölin hafi veitt þeim nýja innsýn í uppbyggingu hryðjuverkasamtakanna. ISIS hafa komið mörgum á óvart með getu sinni í að stjórna svæðum og að byggja um embættismannakerfi á yfirráðasvæðum sínum. Blaðamenn Reuters hafa fengið aðgang að hluta skjalanna, en sérsveitarmenn fundu umfangsmikið magn í árásinni gegn Sayyaf.

Þá hafa skjölin einnig veitt hernaðarbandalaginu gegn ISIS, sem leitt er af Bandaríkjunum, upplýsingar um skotmörk og veikleika í uppbyggingu samtakanna og olíuvinnslu þeirra.

Í skjölunum kemur fram að diwan, sem er í raun ráðuneyti, voru stofnuð til að halda utan um ýmsa þætti ISIS. Sérstök deild sér um sölu fornminja á svörtum mörkuðum. Abu Sayyaf var yfir því ráðuneyti.

„Íslamska ríkið hefur fjárfest meira en nokkur önnur hryðjuverkasamtök í þeirri hugmynd að þeir séu í raun eigið ríki. Formleg skipulagning þeirra styrkir þá ímynd samtakanna auk þess að nýtast vel þegar yfirráðasvæði þeirra er jafn stórt og raun er,“ segir Aymenn al-Tamimi, frá hugveitunni Middle East Forum og sérfræðingur í uppbyggingu ISIS.

Áhyggjur af líffærasölu

Meðal þess sem uppgötvaðist í skjölunum var dómsúrskurður þar sem vígamönnum var gert heimilt að taka líffæri úr föngum samtakanna. Í úrskurðinum segir að löglegt sé að taka líffæri úr fanga til að bjarga lífi múslima, þó það muni leiða til dauða fangans.

Enska þýðingu af úrskurðinum má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×