Mistök eru til að læra af Sigga Dögg skrifar 4. desember 2015 12:00 visir/vilhelm
Ósk Gunnarsdóttir er ekki lítil mús sem læðist meðfram veggjum. Hún er orkumikil, jákvæð, hreinskilin, hjartahrein og brosmild, gott ef hún minnir ekki örlítið á litríkan einhyrning. Allir vegir eru henni færir og enginn trúir því meira en hún sjálf. „Ég er mikil draumóramanneskja og fæ þúsund hugmyndir á hverjum einasta degi, mig langar til að læra allt og vita og kunna. Ég er eins og svampur þegar kemur að upplifunum og reynslu. Allt er spennandi og allt kemur til greina,“ segir Ósk af einlægum ákafa. „Ég trúi því að mistök herði mann og séu til þess að læra af þeim. Því fleiri mistök, því breiðara bak. Þannig kýs ég að takast á við lífið. Þegar maður lendir í einhverju áfalli þá er bara að læra af því og halda áfram og taka það jákvæða úr reynslunni með sér.“Breytingar í loftinu Ósk starfar sem dagskrárgerðarkona í morgunþættinum á FM957 með Sverri Bergmann. „Samstarfið með Sverri er yndislegt, hann er bara ótrúlega góður maður og við erum eins og systkini, í honum hef ég eignast vin fyrir lífstíð og ég get treyst honum fyrir öllum mínum hjartans málum,“ segir Ósk um samstarfsfélaga sinn. „Ég er frekar góður mannþekkjari og er góð í að lesa fólk og því var lítið mál að smella beint saman við hann.“ Breytingar liggja í loftinu á samstarfi þeirra því bráðlega munu þau bæði snúa sér að öðrum verkefnum. „Já, morgunþátturinn eins og hann er í þessari mynd í dag er að líða undir lok og verður seinasti þátturinn okkar sendur út 18. desember, þá skiljast leiðir, allavega í bili,“ segir Ósk sposk. Það liggja mörg tilboð á borðinu og er það fyrsta verkefni Óskar á nýju ári að velja úr. „Ég fylgi innsæi mínu og trúi því að ákvörðunin sem ég tek sé sú rétta. Ég er þannig að ég næ alltaf að gera jákvætt úr hlutunum og er aldrei verkefnalaus svo ég kvíði þessu alls ekki heldur einmitt bara hlakka til að takast á við eitthvað nýtt,“ segir Ósk um þessar óvæntu breytingar.Visir/vilhelmTapar ekki kúlinu Ósk hefur víðtæka reynslu í að sjá um tónlistarhátíðir og viðburði, bæði hérlendis sem erlendis. „Ég hef alltaf haft gríðarlegan áhuga á tónlist og fór í Söngskóla Reykjavíkur, þó það sé kannski best að taka það fram að ég er ekki að trana mér fram sem söngkona, ég er meira svona í því að þjálfa upp aðrar söngkonur og vinna baksviðs, það heillar mig meira.“ Ósk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu stórra viðburða og hefur séð um tónlistarhátíðir líkt og Secret Solstice, ATP, Iceland Airwaves og fjölda annarra stórra viðburða. Það var þó í Bretlandi þar sem reynslan var dýpkuð. „Ég var svo lánsöm að eiginlega detta í draumastarfið í London þar sem ég vann fyrir LD Communications, sem er risastórt viðburðafyrirtæki sem sér um flestar stærstu tónlistarhátíðirnar í Bretlandi og þar flaug ég í gegnum ráðningarferlið þó að ég væri ung og kannski á þeirra mælikvarða, frekar óreynd,“ segir Ósk, sem einnig leggur áherslu á að þar hafi íslenskur bakgrunnur verið styrkur. „Mennirnir sem réðu mig spurðu af hverju þeir ættu að ráða Íslending í starfið og ég sagði þeim að það væri einmitt kjörið því á Íslandi eru allir frægir og því kippum við okkur ekki upp við að hitta frægt fólk, við höldum bara kúlinu og sjáum um að hlutirnir gerist, ekkert röfl eða seinagangur,“ segir Ósk og slær á streng sem leynist í hverju einasta íslenska barnshjarta.úr einkaeiguAlltaf brjálað að gera Ósk nam sálfræði og var stefnan alltaf sett á að verða barnasálfræðingur, en eins og Ósk bætir við: „Það er ekkert útilokað og það getur vel verið að ég læri meira seinna, það er meira að segja líklegra en ekki að ég geri það, framtíðin er óskrifað blað.“ Samhliða námi tókst hún á við ýmis verkefni innan Háskóla Íslands. Leiddi lista Vöku, var gríðarlega virk í Stúdentaráði og sinnti umboðsmennsku fyrir tónlistarfólk líkt og Láru Rúnars og hljómsveitina Sykur. „Ég er nýbúin að fá athyglisbrestsgreiningu,“ segir Ósk og hlær. „Ég elska að vera í mörgum fjölbreyttum verkefnum og ég elska að vinna með fólki við krefjandi aðstæður og þessi ofvirkni er bara eitt af verkefnunum til að vinna með. Ég ætla að nýta mér hugleiðslu og reyna þannig að beisla huga og líkama,“ segir Ósk sem játar að einn hængur sé á athyglisbresti: að byrja á mörgu en klára fátt. „Ég fæ svo margar hugmyndir og svo byrja ég á fullt af hlutum en kannski klára ég þá ekkert endilega en það má líka bara koma að þeim seinna,“ segir Ósk með smitandi jákvæðni. „Maðurinn minn, Snorri, er svo alveg eins svo það er oft líflegt þegar við förum að ræða framtíðina og við erum með alls konar verkefni á teikniborðinu, það er bara að sjá hvað verður að veruleika og hvenær,“ segir Ósk. „Mér hefur alltaf þótt svo flott það sem Baz Luhrman leikstjóri sagði og það var að áhugaverðasta fólkið eru þeir einstaklingar sem eru um fertugt og hafa ekki hugmynd um hvað þeir ætla að verða þegar þeir verða stórir; maður hættir aldrei að læra,“ segir Ósk.úr einkaeiguMóðurhlutverkið Benjamín Eldjárn heitir tveggja ára gamall sonur Óskar og sambýlismanns hennar, Snorra, sem er grafískur hönnuður hjá Brandenburg auglýsingastofu. Benjamín kom undir eftir stutt samband og þá þurfti að taka á honum stóra sínum. „Við vorum bara búin að vera saman í nokkra mánuði og ekki á stefnuskránni að eignast barn, allavega ekki strax, svo bara kemur hann undir, á miðju pilluspjaldi,“ segir Ósk glaðlega og bætir við að hún sé mjög þakklát fyrir hann. „Hann er í mínu fyrsta, öðru og þriðja sæti. Ég er hans og þá er vissara að standa sig,“ segir Ósk. „Þegar ég varð móðir þá breyttist lífssýn mín svolítið, ég fór að velta fyrir mér lífinu og tilgangi þess og þar verður hann alltaf settur í fyrsta sætið en samt þarf ég líka að rækta sambandið við makann og svo sjálfa mig,“ segir Ósk og tekur skýrt fram að lífið sé ekki alltaf dans á rósum. „Ég er oft kölluð Pollýanna og mér þykir það ekki leiðinlegur titill en það verður samt að segjast að þetta foreldrahlutverk er bara ótrúlega erfitt oft á tíðum og setur gífurlegt álag á sambandið. Ef við hefðum ekki frábært stuðningsnet þá værum við eflaust bara á hvolfi. Þetta tekst allt saman því mamma mín er okkar stoð og stytta, enda er hún mín besta vinkona,“ segir Ósk um náið og innilegt samband þeirra mæðgna. Það er mikilvægt að opna umræðuna um tabúmálefni, líkt og streituna sem fylgir uppeldi og ástarsamböndum og þar er hreinskilni Óskar frískandi. „Ég er hreinskilin og segi hlutina eins og er, ég fylgi hjartanu og dreg að mér fólk sem er eins,“ segir Ósk að lokum. Það er nokkuð ljóst að framtíðin er sjálflýsandi og birta fylgir Ósk og þeim sem hún umvefur alla daga
Airwaves Mest lesið Margbraut á sér ökklann á Snæfellsjökli Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Langar að berjast við OnlyFans-stelpur Lífið Biðin langa: Rúmt ár í herlegheitin Leikjavísir Söngkonan Jill Sobule lést í húsbruna Lífið Skúli og Gríma fengu sér hund Lífið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Lífið samstarf Fleiri fréttir Mætti í eigið afmæli í lokaðri líkkistu Verðmiðinn hækkar á höll Antons Skúli og Gríma fengu sér hund Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni Stærsta tímahylki Íslandssögunnar Langar að berjast við OnlyFans-stelpur Margbraut á sér ökklann á Snæfellsjökli Söngkonan Jill Sobule lést í húsbruna Dóttir De Niro kemur út sem trans Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns „Þetta er lúmskt skrímsli“ Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Forsalan sögð slá öll fyrri met „Burtu með fordóma“ tónleikar á Selfossi 1. maí Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Gengst við kókaínfíkn sinni Justin Bieber nýtur sín norður í landi Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Getum verið gröð án þess að blotna eða fá ris Hélt lítill kall í stjörnustríði væri Obi-Wan Kenobi Jón Gnarr birtir sönnunargagn A um ADHD Sveppi og Auddi í fallhlífarstökki yfir Dúbaí Nýtur lífsins í viktorísku koti í London Sjá meira