Kanínurnar töpuðu aftur á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2015 19:05 Axel Kárason í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket. Vísir/EPA
Svendborg Rabbits, eina Íslendingaliðið í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta, tapaði í kvöld með 27 stigum á heimavelli, 100-73, í 6. umferð deildarinnar. Þetta var annað tap Svendborg Rabbits í röð á heimavelli en liðið tapaði fyrir Israel Martin (fyrrum þjálfara Tindastóls) og lærisveinum hans í Bakken Bears í leiknum á undan. Landsliðsmaðurinn Axel Kárason spilar með liði Svendborg Rabbits og landsliðsþjálfarinn Craug Pedersen þjálfar Kanínurnar og honum til aðstoðar er Arnar Guðjónsson. Leikmönnum Svendborg Rabbits til vorkunnar þá eru þarna á ferðinni tvö af bestu liðum deildarinnar sem eru bæði tapalaus til þess á tímabilinu. Axel Kárason var með 7 stig og 7 fráköst í leiknum í kvöld en hann spilaði í rúmar 25 mínútur og hitti úr 1 af 3 skotum sínum og 4 af 8 af vítunum. Svendborg Rabbits tapaði fyrsta leikhlutanum 27-22 en var komið fimmtán stigum undir í hálfleik, 52-37, eftir að Horsens-liðið vann annan leikhlutann 25-15. Axel skoraði fimm stig í fyrri hálfleiknum þar sem hann nýtt öll skotin sín, eitt þriggja stiga skot og tvö víti. Annar slakur leikhluti þýddi að leikmenn Horsens voru búnir að auka muninn í 23 stig, 77-54, fyrir lokaleikhlutann. Í lokin munaði síðan 27 stigum á þessum tveimur liðum. Svendborg Rabbits hefur unnið þrjá leiki og tapað þremur leikjum í fyrstu sex umferðunum og er um miðja deild.
Körfubolti Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Leik lokið: Álftanes - Höttur 111-77 | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Leik lokið: Álftanes - Höttur 111-77 | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Sjá meira