Sport

Hundarnir bitu Vonn til blóðs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lindsey Vonn.
Lindsey Vonn. vísir/getty
Skíðakonan Lindsey Vonn þurfti að fara á sjúkrahús eftir að hafa lent í átökum við hundana sína.

Vonn var að reyna að stöðva slag á milli hundanna um frisbídisk og það endaði með því að hún fékk vænt bit í hendina. Vonn vildi þó sem minnst gera úr málinu og segist vera í góðu lagi.

Hundarnir tveir sem Vonn á voru heimilislausir en hún bjargaði þeim. Hún segir þá vera afar gæfa þó svo þeim hafi hlaupið kapp í kinn um helgina.

Vonn er sjálf enn að jafna sig eftir að hafa ökklabrotnað fyrir rúmum þrem mánuðum síðan í Nýja-Sjálandi.

Hún hefur unnið 67 heimsbikarmót sem er met. Vonn vonast eftir því að komast aftur í brekkurnar um næstu mánaðarmót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×