Sport

Var að spila fótbolta fyrir pabba

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Feðgarnir á góðri stund.
Feðgarnir á góðri stund. vísir/getty
Sonur rapparans Snoop Dogg, Cordell Broadus, er hættur að spila amerískan fótbolta.

Cordell Broadus þótti afar efnilegur spilari og lék fyrir UCLA-háskólann. Hann hefur fengið nóg af boltanum og ætlar að snúa sér að öðru.

Strákurinn óskaði föður sínum til hamingju með afmælið á Instagram og sagði þá að hann hefði verið íþróttamaður fyrir föður sinn.

„Ég spilaði fyrir pabba því ég hélt að það væri eina leiðin til þess að fá hann til að elska mig og vera hluti af mínu lífi," skrifaði Broadus.

„Það tók mig 12 ár að fatta að hann elskaði mig en ekki fótboltamanninn. Besti dagur lífs míns var þegar ég heyrði þau orð. Ég elska þig pabbi og vonandi áttu frábæran afmælisdag."

Broadus spilaði sem útherji og var 27. besti útherjinn í háskólaboltanum samkvæmt úttekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×