Íslendingar handteknir í tengslum við gríðarstóra kannabisræktun á Spáni Bjarki Ármannsson skrifar 11. október 2015 11:25 Frá vöruskemmunni. Mynd/Spænska þjóðvarnarliðið
Þrír Íslendingar eru meðal þeirra sem lögregla á Spáni hefur handtekið í tengslum við mjög umfangsmikla kannabisræktun í bænum Molina de Segura. Samkvæmt því sem kemur fram í spænskum fjölmiðlum fannst háþróaðasta kannabisgróðurhús sem fundist hefur í Evrópu, metið á um 140 milljónir íslenskra króna, í bænum.Í frétt La Opinión de Murcia um málið kemur fram að 58 ára Íslendingur og sjö Hollendingar á aldrinum 27 til 43 ára hafi verið handteknir grunaðir um fíkniefnasmygl og skipulagða glæpastarfsemi. Miðillinn La Verdad greinir svo frá því að tveir íslenskir ríkisborgarar til viðbótar hafi verið handteknir á leið úr landinu. Jafnframt hafi fleiri meðlimir glæpasamtakanna verið handteknir á flugvellinum í Alicante á leið til Íslands. Rannsókn lögreglu hófst þegar tilkynnt var um einkennileg frávik í rafmagnslínum í iðnaðarhverfi Molina de Segura. Við nánari skoðun kom í ljós að rafmagni var veitt í stóra vöruskemmu sem borgaði enga rafmagnsreikninga. Í skemmunni fundust um sex þúsund kannabisplöntur. Talið er að framleiðslan hafi verið hluti af umfangsmiklum smyglhring, sem hafi flutt um tíu tonn af marijúana til Hollands í hverjum mánuði.DV greindi frá málinu fyrstur íslenskra miðla.
Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira