Sport

Skaut í átt að óléttri unnustu sinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Porter er hér í appelsínugulri treyju á æfingu.
Porter er hér í appelsínugulri treyju á æfingu. vísir/getty
Deiondre Porter spilar væntanlega ekki meira með Flórída-háskólanum í vetur eftir að hafa skotið úr byssu að óléttri unnustu sinni.

Hann sakaði unnustuna um að halda við liðsfélaga sinn og brást við á þennan hátt.

Hann er eðlilega kominn í fangelsi og skólinn hefur sett hann í ótímabundið bann. Porter er nýliði hjá þessu sterka háskólaliði.

Það vantar annars ekki agavandamálin hjá Florida. Þetta atvik kom upp aðeins tveim dögum eftir að leikstjórnandinn Will Grier var settur í eins árs bann fyrir ólöglega lyfjanotkun.

Þriðji leikmaður liðsins var svo handtekinn fyrir nokkrum mánuðum síðan en hann rændi búð með byssu að vopni. Sá hefur verið rekinn úr skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×