Manchester United og Manchester City spila heimaleik á sama kvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2015 12:00 Vísir/Getty
Lögreglan í Manchester-borg mun hafa í nóg að snúast miðvikudagskvöldið 28. okótber næstkomandi þegar bæði Manchester-liðin munu spila heimaleik í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins. Manchester United og Manchester City mætast í ensku úrvalsdeildinni sunnudaginn 25. október og í vikunni á eftir fer fram fjórða umferð enska deildabikarsins. Bæði Manchester-liðin eiga heimaleik í átta liða úrslitunum og hvorugt félagið var skiljanlega tilbúið að spila á þriðjudagskvöldinu eða aðeins 48 tímum eftir derby-slaginn á Old Trafford. Lögreglan í Manchester-borg lét undan og gaf leyfi fyrir að báðir leikirnir fari fram sama kvöld. Manchester United tekur þá á móti b-deildarliði Middlesbrough en Manchester City fær Crystal Palace í heimsókn í úrvalsdeildarslag.Leikur Manchester City hefst fimmtán mínútum fyrr eða klukkan korter í átta. Það eru rúmir átta kílómetrar á milli leikvanganna, Old Trafford og Etihad og stuðningsmenn liðanna munu því líklega ekkert umgangast hvora aðra þetta kvöld. Allt að 130 þúsund áhorfendur gætu samt mætt á þessa tvo leiki en þá þarf að seljast upp á leikina. Ekki þykir þó líklegt að áhuginn á deildabikarleikjunum sé það mikill. Þetta er óvenjuleg staða en ekki þó í fyrsta sinn sem bæði Manchetser-liðin spila heimaleik á sama kvöld. Það gerðist einnig í september 2009 þegar Manchester City mætti Fulham á sama tíma og Manchester United tók á móti Wolverhampton Wanderers á Old Trafford. Ári áður, eða í desember 2008, tók Manchester City á móti Paris Saint-Germain í UEFA-bikarnum á Etihad-leikvanginum sama kvöld og Manchester United spilaði heimaleik við Blackburn Rovers í enska deildabikarnum. Manchester-liðin hafa byrjað liða best í ensku úrvalsdeildinni og sitja eins og er í tveimur efstu sætunum. Manchester United er í efsta sæti með sextán stig en Manchester City er með stigi minna.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira