Umhverfisfulltrúi kannar skriðuhættu vegna lúpínu í fjalllendi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. september 2015 09:00 Í Tungudal á Ísafirði er talsvert af lúpínu. mynd/pjetur „
Það er ekki hægt að útrýma lúpínu en það þarf að gera eitthvað til að halda henni í skefjum,“ segir Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi Ísafjarðarbæjar, sem kannar nú hvort lúpína skapi hættu á skriðföllum. Umhverfisnefnd bæjarins fól Ralf að hafa samband við sérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands og fleirum og afla gagna um mögulega skriðuhættu á lúpínusvæðum í kjölfar erindis frá Kristínu Mörtu Hákonardóttur um samhengi gróðurs og flóðahættu. Á fundi nefndarinnar óskaði Ralf jafnframt eftir heimild til rannsókna á hættu á jarðskriðum eða snjóflóðum vegna lúpínugróinna svæða ofan byggðarkjarna. „Það eru ekki til á Íslandi rannsóknir á jarðskriðuhættu vegna lúpínu,“ segir Ralf sem telur þó rökrétt að óttast hættu á skriðum vegna lúpínu. „Í brattri brekku þar sem er mikið af lúpínu býr hún til jarðveg og festir sig við grunninn. Þegar blotnar verður jarðvegurinn þungur og kannski lausari en venjuleg íslensk fjallabrekka. Spurningin er hvað þarf til að slíkt fari af stað,“ útskýrir Ralf. Sjálfur segist Ralf ekki hafa dæmi um skriðuföll af fyrrgreindum orsökum á Íslandi en kveðst vera í sambandi við ýmsa aðila hér til að afla upplýsinga. „Þetta snýst ekki bara um jarðskrið heldur líka hvort meiri líkur séu á snjóflóðahættu ef plöntur eru ofan á. Dæmi um þetta eru meðal annars frá Sviss,“ segir Ralf. Hann segist telja að það kunni að vera áhugavert að fá gleggri mynd af þessum málum.
Tengdar fréttir Vill samtök fyrir vini Höfðans „Ég vil koma í veg fyrir að Höfðinn fari undir lúpínuna, það er ósköp einfalt mál,“ segir Steindór Haraldsson, sveitarstjórnarmaður á Skagaströnd, sem íhugar að stofna samtök vina Spákonufellshöfða. 9. september 2015 07:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Vill samtök fyrir vini Höfðans „Ég vil koma í veg fyrir að Höfðinn fari undir lúpínuna, það er ósköp einfalt mál,“ segir Steindór Haraldsson, sveitarstjórnarmaður á Skagaströnd, sem íhugar að stofna samtök vina Spákonufellshöfða. 9. september 2015 07:00