Körfubolti

Hlynur um Dirk Nowitzki: Öðruvísi en að mæta einhverjum skógarhöggsmönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson og Dirk Nowitzki.
Hlynur Bæringsson og Dirk Nowitzki. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska liðsins, bar sig vel eftir leikinn á móti Þjóðverjum í gær en reynir mikið á kappann í leikjum Íslands á Evrópumótinu.

"Við höfum alveg séð hvernig er talað um okkur. Það er talað um okkur eins og við séum eitthvað fallbyssufóður hérna. Kannski verður eitthvað móment í mótinu sem verður erfitt eins og einhver sprettur hjá Spánverjum. Við sýndum í þessum fyrsta leik á móti Þjóðverjum að við megum alveg vera með á þessu móti," segir Hlynur Bæringsson um frammistöðu íslenska liðsins í fyrsta leiknum í gær.

„Það er ekki hægt að labba yfir okkur á þessu móti en á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að það er aðeins meiri brekka hjá okkur en hinum liðunum," segir Hlynur en hvernig er orkustaða fyrirliðans eftir fyrsta leik.

„Það er allt í lagi staða á mér. Auðvitað er ég samt rosalega þreyttur," segir Hlynur en það var mikil upplifun fyrir hann að mæta Dirk Nowitzki í þessum leik í gær.

„Það var ótrúlegt að vera á vellinum með Dirk. Maður ýtir því öllu frá sér fyrir leik og í leiknum en eftir leikinn var það rosalega gaman að hafa mætt honum. Ég ætla ekki að reyna að þykjast að segja að þetta hafi verið eins og hvað annað. Hann er uppáhaldsíþróttamaðurinn minn síðustu fimmtán árin. Sama hvað hver segir, þá er það merkilegt fyrir alla," segir Hlynur.

„Eins góður og Dirk er þá er hann ekki mjög orkufrekur leikmaður. Hann tekur vissulega frá þér orku en þetta er öðruvísi en að mæta einhverjum skógarhöggsmönnum undir körfunni," segir Hlynur.

„Ég vona að ég eigi nóg eftir á móti Ítölum. Ég verð örugglega mikið að dekka Andrea Bargnani og hann er mikið að skjóta boltanum. Ég verð bara hress," segir Hlynur.


Tengdar fréttir

Hörður Axel: Við erum engir túristar í Berlín

Hörður Axel Vilhjálmsson átti frábæran leik í vörninni þegar Íslands tapaði naumlega með sex stigum á móti Þjðoðverjum í fyrsta leik sínum á Eurobasket 2015.

Jón Arnór: Aldrei verið jafn stressaður fyrir leik á ævinni

Jón Arnór Stefánsson, stórstjarna íslenska körfuboltalandsliðsins, var svekktur í lokin á leik Íslands og Þýskalands. Ísland tapaði með sex stiga mun, 71-65, í hörkuleik, en þetta var fyrsti leikur Íslands á Eurobasket.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×