Formúla 1

Honda setur markið á Ferrari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kimi Raikkonen á Ferrari og Jenson Button á McLaren koma kannski til með að berjast meira á brautinni á næstu vikum.
Kimi Raikkonen á Ferrari og Jenson Button á McLaren koma kannski til með að berjast meira á brautinni á næstu vikum. Vísir/Getty
Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.

Deildarstjóri kappakstursdeildar Honda, Yasuhisa Arai segir að gjörbreytt vélarblokk, loftintök og pústkerfi muni auka afl vélarinnar til muna.

Gert er ráð fyrir að Honda noti flesta eða alla uppfærsluskammta sína í þessa uppfærslu. Í kjölfarið færist áhersla þróunardeildanna yfir á næsta ár.

„Síðasta uppfærslan kemur á Spa í ár, litlar fínstillingar munu fylgja í kjölfarið,“ sagði Arai.

„Mk3 (nýjasta Honduvélin) mun líta dagsins ljós á Spa, við höfum þegar hafið þróun vélarinnar fyrir næsta ár,“ bætti Arai við.

„Mk4 mun vera á standa jafnfætis Mercedes vélinni, það er markmiðið; Mk3 verður á svipuðum slóðum og Ferrari vélin, þar setjum við markið. Það er stórt skref,“ sagði Arai.

Arai segist telja að vélin hafi hingað til ekki fengið að njóta sín til fulls. Hann telur hana betri en Renault vélina en að undirvagn bílsins sé ekki nógu góður.

Gæti verið að sprunga sé að koma í samstarf McLaren og Honda sem hingað til hefur virst skothelt?

Nei sennilega ekki, þetta er í takt við orð annarra úr herbúðum beggja aðila. Það hefur verið umtalsefni frá upphafi að báðir aðilar þurfi að bæta sig.


Tengdar fréttir

Svefngasi beitt á Button

McLaren ökumaðurinn Jenson Button og eiginkona hans Jessica Button urðu fyrir þjófnaði í fríi í Saint-Tropez í Frakklandi.

Brösótt endurkoma Honda

Yfirmaður kappakstursmála hjá vélaframleiðandanum Honda segir að endurkoman í Formúlu 1 hafi ekki gengið sem skyldi.

Mercedes fljótastir og McLaren áreiðanlegir

Nico Rosberg ók Mercedes bíl sínum hraðast allra á seinni æfingadegi Formúlu 1 á Red Bull Ring í Austurríki í gær. Pascal Wehrlein ók hraðast fyrir Mercedes á þriðjudag. McLaren rauf 100 hringja múrinn.

Vandi McLaren ekki allur hjá Honda

Þróunar- og varaökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne segir að til að komast aftur á toppinn þurfi bætingar á öllum sviðum. Skortur á vélarafli sé ekki eini vandinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×