Innlent

Elliði segir Gunnar Braga hafa orðið sér til skammar

Birgir Olgeirsson skrifar
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Vísir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra hafa orðið sér til skammar í viðtalsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni síðastliðinn sunnudag. Elliði rekur orðaskipti Gunnþórs Ingvason, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, og Gunnars Braga á bloggi sínu í kjölfar þess að Rússar ákváðu að setja viðskiptabann á Íslendinga.

Sjá einnig: Gunnar Bragi segir útgerðarmenn virðast hugsa meira um næsta ársreikning en hag þjóðarinnar

Elliði segir gagnrýnin viðbrögð Gunnþórs hafa átt rétt á sér vegna þeirra áhrifa sem Rússabannið hefur á Síldarvinnsluna. „Það er eðlilegt að hann hafi áhyggjur af fyrirtækinu, starfsmönnum þess og samfélaginu á Reyðarfirði.  Ef hann hefði það ekki væri hann ekki starfi sínu vaxinn.  Eðlileg viðbrögð Gunnþórs voru að tjá sig opinberlega og gagnrýna þann skaða sem búið væri að vinna á hálfrar aldar uppbyggingu á mörkuðum í Rússlandi,“ segir Elliði.

Segir ráðherra hafa viðhaft lítt duldar hótanir

Elliði segir Gunnar Braga hafa brugðist hinn versti við vegna gagnrýni Gunnþórs í stað þess að sýna því skilning sem kjörinn fulltrúi að orð og gjörðir í utanríkismálum hafa afleiðingar fyrir íbúa þess lands og fyrirtæki og mæta þannig gagnrýni af stillingu. Elliði segir eðlilegt að stjórnmálamenn þurfi að ræða veigamiklar ákvarðanir sem snerta íbúa landsins, það sé eðlilegt að þeir þurfi að svara fyrir gjörðir sínar.

„Ef þeir ráða ekki við að gera slíkt á málefnalegan hátt þá eru þeir ekki starfi sínu vaxnir,“ segir Elliði sem segir Gunnar Braga hafa gengið svo langt í þættinum Sprengisandi að viðhafa lítt duldar hótanir um að ef Gunnþór hefði ekki vit á að halda sig til hlés þá yrði fiskveiðistjórnunarkerfið endurskoðað.

„Eigum við að treysta þessum aðilum fyrir auðlindinni?“

Gunnar Bragi beindi orðum sínum að Jens Garðari Helgasyni, formanni Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og öðrum útgerðarmönnum, en hann sagði holan hljóm í málflutningi þeirra. „Fyrir mér snýst það einmitt um hag þjóðarinnar að við höfum átt bandamenn í að sækja fram með okkar málefni, verja okkar landhelgi eða okkar hagsmuni hvort sem það er í loft-, landhelgi eða annað. Þá sýnist mér að útflytjendur séu fyrst og fremst að hugsa um næsta ársreikning. Það finnst mér býsna gróft. Það verður líka að kalla eftir því að þessir aðilar sýni samfélagslega ábyrgð. Eigum við að treysta þessum aðilum fyrir auðlindinni?,“ sagði Gunnar Bragi í þættinum Sprengisandi.

Brigsl um arðgreiðslur og oflátungshátt

„Ef Gunnþór tjáir skoðanir sem ekki eru stjórnmálamanninum þóknanlegar megi allt eins búast við því að eignir hans og tengdra aðila verði gerðar upptækar,“ segir Elliði um orð Gunnars Braga og segir ráðherrann hafa kryddað þessar alvarlegu hótanir með brigslum um arðgreiðslur og oflátungshátt Síldarvinnslunnar.

„Ég vil trúa því að ráðherrann hafi hér hlaupið á sig og þetta tilvik sé ekki dæmigert fyrir hann.  Eftir stendur að framkoman að þessu sinni var honum ekki samboðin heldur til skammar,“ segir Elliði.

Merki um vondan málstað

Hann segir ömurlegt fyrir þá sem eiga allt undir sjávarútvegi að stjórnmálamenn skuli ítrekað leyfa sér að vega að atvinnugreininni. „Það veikir sjávarútveg og sjávarbyggðir.  Orð Gunnars Braga hafa vægi og í karpi um utanríkismál hefur hann ekkert að gera með að viðhafa slíkar hótanir.  Það er fullkomlega skiljanlegt að Gunnþór Ingvarsson bregðist við ákvörðun sem skaðar fyrirtæki hans og hans heimabyggð.  Rétt viðbrögð ráðherra hefðu verið að útskýra og réttlæta ákvörðun sína en ekki að viðhafa hótanir og brigslanir.  Að nálgast málið málefnalega en ekki að reyna að þagga niður í gagnrýnisröddum.  Slíkt er eingöngu merki um vondan málstað.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×