Lífið

Lamaður á kajak á Hestvatni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Svanur og Þröstur tvíburabróðir hans fara reglulega á kajak á Hestvatn í Grímsnesi og eiga þar góða stund saman. Hér er verið að taka viðtal við þá, sem sýnt verður í þætti kvöldsins.
Svanur og Þröstur tvíburabróðir hans fara reglulega á kajak á Hestvatn í Grímsnesi og eiga þar góða stund saman. Hér er verið að taka viðtal við þá, sem sýnt verður í þætti kvöldsins.
„Mér finnst ég frjáls eins og fuglinn þegar ég kemst á kajakinn, þá næ ég mikilli snertingu við náttúruna, fuglarnir allt í kring og lífið verður eins dásamlegt og það getur verið“, segir Svanur Ingvarsson á Selfossi sem verður gestur þáttarins „Feðgar á ferð“ í kvöld.

Svanur er lamaður fyrir neðan mitti eftir að hann féll af húsþaki á Selfossi þar sem hann var við smíðavinnu fyrir 25 árum með félögum sínum.

Hann lætur ekkert stoppa sig, hefur tvívegis keppt á ólympíuleikum fatlaðra fyrir hönd Íslands, syndir á hverjum degi, fer út með hundinn sinn, smíðar og treður upp sem skemmtikraftur með bræðrum sínum.

Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20 í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×