Viðskipti erlent

Segir engan vilja ræða efnahagsmál innan evruhópsins: „Þú gætir allt eins verið að syngja sænska þjóðsönginn“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Yanis Varoufakis, fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands.
Yanis Varoufakis, fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands. vísir/getty
Yanis Varoufakis, fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands, er í afar opinskáu viðtali á vef breska tímaritsins New Statesman. Varoufakis sagði af sér embætti í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem haldin var þann 5. júlí síðastliðinn vegna þrýstings frá evrópskum leiðtogum um að hann tæki ekki frekari þátt í skuldaviðræðum þjóðarinnar.

Viðtalið við Varoufakis var tekið í síðustu viku, áður en Grikkir náðu samkomulagi við lánardrottna í morgun. Aðspurður hvort að samningar sem kynnu að nást á næstu dögum yrðu góðir fyrir þjóð hans sagði Varoufakis:

„Ef eitthvað þá verða þeir verri. Ég trúi því og treysti að ríkisstjórnin okkar leggi áherslu á endurskipulagningu skulda ríkisins en ég fæ ekki séð að þýski fjármálaráðherrann [Wolfgang Schäuble] muni nokkurn tímann samþykkja það. Ef hann gerir það verður það kraftaverk.“

Skemmst er frá því að segja að ekkert slíkt kraftaverk varð um helgina heldur felur samkomulag Grikkja við lánardrottna í stuttu máli í sér skattahækkanir og mikinn niðurskurð. Á móti fær ríkið enn á ný neyðarlán, í þetta sinn upp á 82 til 86 milljarða evra.

Þýski fjármálaráðherrann fastur fyrir

Varoufakis ber evruhópnum ekki vel söguna. Lánardrottnar hafi meðal annars viljað hann út því hann hafi viljað ræða efnahagsmál innan evruhópsins en það hafi enginn annar viljað.

„Þú setur fram efnahagsleg rök fyrir einhverju sem þú hefur virkilega unnið að og það er bara starað á þig. Það er eins og þú hafir ekki sagt orð. [...] Þú gætir allt eins verið að syngja sænska þjóðsönginn, þú fengir sama svarið. Og það vekur undrun hjá þeim sem er vanur rökræðum innan akademíunnar... Þar tekur hinn aðilinn alltaf þátt. Þarna tók enginn þátt.“

Varoufakis segir að Schäuble hafi verið mjög fastur fyrir allan tímann enda ráði hann því sem hann vilji ráða innan evruhópsins.

„Hans skoðun var þessi: „Ég ætla ekki að ræða áætlunina. Þetta var samþykkt af fyrri ríkisstjórn og við getum alls ekki leyft kosningum að breyta því. Það er alltaf verið að halda kosningar, við erum 19 í þessum hóp, svo ef við þyrftum alltaf að breyta einhverju í hvert skipti þá þýddu þessir samningar á milli okkar ekki neitt.““

Evruhópurinn með mestu völdin en er í raun ekki til

Varoufakis segist þá hafa staðið upp og sagt: „Nú, jæja. Við ættum þá kannski ekki að halda kosningar í skuldsettum ríkjum.“ Hann fékk ekkert svar:

„Ég túlkaði þögnina sem svo að þeir hugsuðu: „Já, það er góð hugmynd en erfið í framkvæmd. Svo annað hvort fylgirðu línunni eða þú ferð út.““

Að mati Varoufakis er stærsta vandamál evruhópsins skortur á regluverki í kringum það hvernig hann starfar. Evruhópurinn sé í raun ekki til í neinum lögum Evrópusambandsins og engir formlegir samningar milli ríkja hafa verið undirritaðir vegna hópsins.

„Svo hópurinn er ekki til en hefur engu að síður mestu völdin til að taka ákvarðanir um líf Evrópubúa. Hópurinn þarf ekki að svara fyrir sig hjá neinum, þar sem engin lög ná yfir hann, engar fundargerðir eru skráðar og allt sem fram fer er í trúnaði. Þannig að enginn borgari veit hvað fer þarna fram... Þarna eru ákvarðanir teknar upp á nánast líf og dauða og ekkert ríki þarf að svara fyrir eitt né neitt.“

Lesa má tvær útgáfur af viðtalinu við Varoufakis á vef New Statesman, hér og hér.


Tengdar fréttir

„Langur vegur framundan fyrir Grikkland“

Angela Merkel Þýskalandskanslari segir að nýtt samkomulag við Grikki feli ekki í sér skuldaniðurfellingar en skilyrði endurgreiðslna verði rýmkuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×