Lífið

Bilun í miðakerfi: Ekki enn uppselt á Secret Solstice

Stefán Árni Pálsson skrifar
Secret Solstice hófst í gær og stendur alla helgina í Laugardalnum.
Secret Solstice hófst í gær og stendur alla helgina í Laugardalnum. vísir/andri marinó
Bilanir urðu í miðakerfi í morgun og því var ekki hægt að kaupa miða á tónlistarhátíðina Secret Solstice. Þessu var þó kippt í liðinn fljótlega og geta því áhugasamir orðið sér út um miða.

Gríðarleg stemning var á hátíðinni í gær og því eflaust margir sem ætla að fá sér miða í dag. Aðeins eru örfáir miðar eftir og því mikilvægt að hafa hraðar hendur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×