Erlent

Enn hefur ekkert spurst til strokufanganna - Myndir

Samúel Karl Ólason skrifar
Ríkisstjórinn Andrew Cuomo á blaðamannafundi.
Ríkisstjórinn Andrew Cuomo á blaðamannafundi. Vísir/AFP
Enn hefur ekkert spurst til tveggja dæmdra morðingja sem brutust út úr öryggisfangelsi í New York ríki í Bandaríkjunum um helgina. Ríkisstjórinn Andrew Cuomo segir að hundrað þúsund dollarar hafi nú verið settir til höfuðs þeim enda séu þeir afar hættulegir og líklegir til þess að fremja ódæðisverk á ný.

Fangelsið er eitt af elstu fangelsum Bandaríkjanna og frá hámarksöryggisdeild þess hefur engum tekist að sleppa í hundrað og fimmtíu ár. Mennirnir komust yfir rafmagnsverkfæri í fangelsinu og náðu að skera gat á stálvegg í fangelsinu þaðan sem þeir komust inn í lagnakerfi hússins.

Þar þurftu þeir að skera sig í gegnum stálrör sem leiddi þá út í frelsið. Flóttinn þykir mjög líkur fangaflótta í kvikmyndinni Shawshank Redemtion. Ekki hefur verið gefið út hvernig þeir komust hjá því að einhver heyrði í þeim, en ríkisstjórinn segir ómögulegt að enginn hafi gert það.

Verkfærin fengu þeir að öllum líkindum í fangelsinu, en talning hefur leitt í ljós að engra er saknað. Verktakar sem hafa unnið í fangelsinu fara nú yfir verkfæri sín og kanna hvort einhverra sé saknað.

Mögulega komnir til Kanada

David Sweat var dæmdur til lífstíðarfangelsis án möguleika á reynslulausn eftir að hann var dæmdur yfrir morð á lögreglumanni í júlí árið 2002. Richard Matt fékk hins vegar frá 25 árum til lífstíðarfangelsisvistar. Hann var dæmdur fyrir þrjú morð, þrjú mannrán og tvö rán eftir að hann rændi manni og barði hann til dauða í desember árið 1997.

„Þetta eru morðingjar,“ sagðir ríkisstjórinn á blaðamannafundi í gærkvöldi. „Það hefur aldrei verið nokkur efi um að þá glæpi sem þeir hafa framið. Þeir ganga nú lausir og við setjum forgang á að handsama þá.“

Hundruð lögregluþjóna leita nú við fangelsið með þyrlum og leitarhundum og einnig fylgja þeir eftir ábendingum sem hafa borist lögreglunni. Lögreglan hefur þó ekki grun um hvar þeir eru niðurkomnir og Cuomo segir mögulegt að þeir séu þegar komnir til Kanada. Það tekur einungis 45 mínútur að keyra til Montreal frá fangelsinu.

Með því að skríða í gegnum götin komust þeir í lagnakerfi fangelsisin.Vísir/AFP
Fangarnir skáru gat á stórt rör sem þeir notuðu til að sleppa.Vísir/AFP
Þennan miða skildu fangarnir sem kveðju eftir við gatið á rörinu.Vísir/AFP

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×