Erlent

Tveir dæmdir morðingjar sluppu úr hámarksöryggisfangelsi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögreglan í New York biður alla um að deila Facebook færslu sinni.
Lögreglan í New York biður alla um að deila Facebook færslu sinni. Vísir/New York State Police
Tveir dæmdir morðingar sluppu úr fangelsi í New York sem alla jafna hefur verið þekkt fyrir hámarksöryggi. Fangarnir skáru í gegnum stálvegg og skriðu í gegnum undirgöng að holræsisopi fyrir utan veggi fangelsisins.

Fangarnir heita Richard Matt og David Sweat en það uppgötvaðist að þeir voru horfnir snemma í gærmorgun. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar í New York. Þeir sáust síðast á ellefta tímanum á föstudagskvöldið síðastliðið.

**PLEASE SHARE**On June 6, at 5:45 a.m. the New York State Police received a call from the Clinton Correctional...

Posted by New York State Police on Saturday, June 6, 2015
Þá fór um leið í gang víðtæk leit en 200 manns tóku þátt í henni. Mennirnir eru þeir fyrstu sem sleppa úr hámarksöryggishluta fangelsisins.

„Þetta eru hættulegir menn,“ sagði Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York fylkis, „Þeir eru ekkert til að leika sér að.“

Fangarnir plötuðu fangaverðina með því að láta líta út fyrir að þeir svæfu í rúmum sínum þegar verðirnir framkvæmdu talningu á tveggja tíma fresti. Matt og Sweat dvöldu í fangaklefum hlið við hlið og höfðu samkvæmt CNN einhvers staðar fengið verkfæri sem eru nógu öflug til þess að skera í gegnum stálveggi. Fangelsisyfirvöld tóku Cuomo í gegnum flóttaleið fanganna. „Þetta var vönduð og margbrotin áætlun. Það þurfti að bora í gegnum stálveggi og stálpípur.“

Fangelsisyfirvöld hafa enga hugmynd um hvernig fangarnir náðu í svo öflug verkfæri. Fangelsið er frá árinu 1845 og undirgengst reglulega viðhald svo líklegt er talið að verkfærin hafi komið frá iðnaðarmönnum sem starfa innan stofnunarinnar.

Sweat var dæmdur til lífstíðarfangelsis án möguleika á reynslulausn eftir að hann var dæmdur yfrir morð á lögreglumanni í júlí árið 2002. Matt fékk hins vegar frá 25 árum til lífstíðarfangelsisvistar. Hann var dæmdur fyrir þrjú morð, þrjú mannrán og tvö rán eftir að hann rændi manni og barði hann til dauða í desember árið 1997.

Fangelsið sem þeir dvöldu á er það stærsta í New York en þar dvelja 2689 fangar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×